Fréttir

true

Steinlágu í lokaleiknum

Skagamenn steinlágu gegn Víkingi R., 1-5, þegar liðin mættust í lokaleik Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á laugardaginn. Það var hvorki barist við fall né um titla í leiknum á Akranesvelli, en það kom þó ekki í veg fyrir að bæði lið mættu ákveðin til leiks. Skagamenn voru ákafir í…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í Norðurgarð í Grundarfirði

Síðastliðinn föstudag voru opnuð tilboð í lengingu Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn. Það er Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar sem óskaði eftir tilboðum í verkið en í því felst m.a. 90 m langur bermugarður, rekstur 122 stálþilsplatna, steypa ankerisplatna auk uppsetningar staga og festinga, jarðvinna og festing polla og fríholta. Bygging bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. janúar 2020,…Lesa meira

true

Stofnfundur félagsins Arfur Þorsteins frá Hamri

Annað kvöld, þriðjudaginn 1. október, verður haldinn stofnfundur félags sem lagður hefur verið grunnur að undir heitinu Arfur Þorsteins frá Hamri.  Stofnfundurinn verður haldinn í Iðnó í Reykjavík – í sal á annarri hæð. Húsið verður opnað kl. 19:30. Fundurinn hefst klukkan 20 og stendur í um klukkustund. Fundarstörf verða krydduð með ljóðum skáldsins. Allir eru…Lesa meira

true

Beljur í búð verðlaunaverkefni Plastaþons

Hugmyndin „Beljur í búð“ stóð uppi sem sigurvegari í Plastaþoni Umhverfisstofnunar og Plastlauss septembers sem fram fór um liðna helgi. Sjö teymi unnu að lausnum á plastvandanum en fjölbreyttur hópur fólks tók þátt í viðburðinum. Hugmyndin á bak við Beljur í búð er sú að setja upp sjálfsafgreiðsluvélar fyrir mjólkurvörur í verslunum þannig að kaupandinn…Lesa meira

true

Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hóf tímabilið með heimaleik fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Liðið vann sér þátttökurétt í næstefstu deild eftir góðan árangur í annarri deildinni í fyrra. UMFG tók á móti b-liði Aftureldingar í sínum fyrsta leik og fyrsta hrinan var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að taka forystu í hrinunni en…Lesa meira

true

Söguskilti sett upp við Lambhúsasund

Í dag var afhjúpað nýtt söguskilti við Lambhúsasund á Akranesi. Það sem einkum heyrir til tíðinda við það er að um leið var 700. myndinni komið á framfæri á skiltum sem er nú að fínna víðsvegar um bæjarfélagið, en Haraldur Sturlaugsson hefur haft þetta áhugamál um 14 ára skeið. „Að þessum 700 uppsetningum hafa komið,…Lesa meira

true

Tvö ný skip komin til Grundarfjarðar

Í gær, laugardaginn 28. september, komu tvö ný skip til heimahafnar í Grundarfirði. Þarna voru útgerðirnar FISK Seafood og Soffanías Cecilsson að endurnýja Farsæl og Sigurborgu en nýju skipin munu bera sömu nöfn. Farsæll SH 30 og Sigurborg SH 12 verða gerð út frá Grundarfirði og er þeim fyrst og fremst ætlað að sinna því…Lesa meira

true

Breyting verður gerð á vegnúmerum Uxahryggjavegar

Sú breyting mun eiga sér stað um næstu áramót að sá hluti núverandi Kaldadalsvegar (550) sem liggur frá Þingvallavegi (36) að vegamótum við Uxahryggjaveg (52) mun verða hluti Uxahryggjavegar. Þannig mun vegur 52 liggja frá Þingvallavegi alla leið að Borgarfjarðarbraut (50). Sjá kort. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir jafnframt að þessi…Lesa meira

true

Leita að strákum í hlutverk í nýrri unglingsmynd

Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures leitar eftir strákum á aldrinum 13-16 ára fyrir aðalhlutverk í nýrri kvikmynd leikstjórans Guðmunds Arnars Guðmundssonar. Myndin hefur hlotið vinnuheitið Berdreymi og fjallar um hóp unglingstráka í úthverfi Reykjavíkur sem upplifa sig utangarðs og nota ofbeldi til þess að leysa sín deilumál. „Myndin sýnir vináttu þeirra, bæði í sinni fegurð og…Lesa meira

true

Guðrún þjálfar Skallagrím

Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur verið ráðin þjálfari Skallagríms í meistaraflokki kvenna. Mun hún því stýra liðinu í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Guðrún er 32 ára gömul og uppalin hjá Skallagrími. Hún lék með yngri flokkum félagsins og á að baki fjölda leikja í efstu deild með Skallagrími, Haukum og KR. Á sínum leikmannaferli hefur…Lesa meira