Fréttir

true

Sjávarútvegssýningunni Iceland Fishing Expo lýkur í kvöld

Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2019 stendur nú yfir í Laugardalshöll í Reykjavík og lýkur í kvöld. Þar eru 120 sýnendur staddir og gefa þeir ágæta innsýn í fjölmargt sem tengist sjávarútvegi í dag, vinnslu afurða, tæki og búnað í skip og báta og fjölmargt annað sem tengist greininni með beinum og óbeinum hætti. Þessi sýning…Lesa meira

true

Lífleg fataverslun í ágúst

Innlend kortavelta Íslendinga stóð í stað að nafnvirði í ágúst. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að töluverður gangur var í fataverslun sem jókst um 17% frá ágúst í fyrra. Netverslun stórmarkaða og dagvöruverslana er enn í miklum vexti. Kortanotkun Íslendinga í verslun hérlendis nam 35,5 milljörðum króna í ágúst síðastliðnum og dróst saman um…Lesa meira

true

Brugðu sér bæjarleið á sýninguna Hjúkrun í 100 ár

Í liðinni viku fór hópur hjúkrunarfræðinga frá Akranesi í Árbæjarsafn til að sjá sýninguna Hjúkrun í 100 ár. Sýningin var sett upp í tilefni þess að hundrað ár eru liðin síðan hjúkrunarkonur stofnuðu félag sitt. Sýningin var opnuð 19. júní síðastliðinn og stendur fram til 17. nóvember næstkomandi. Hjúkrun í 100 ár er samstarfsverkefni Félags…Lesa meira

true

Minningarfyrirlestur um Snorra markar upphafi vetrardagskrár Snorrastofu

Eins og árstíðin býður, standa nú haustverkin yfir hvert sem litið er í samfélaginu. Uppskeru sumarsins er safnað af kappi, nemendur hefja skólagöngu og fénu er smalað í heimahagana, svo eitthvað sé nefnt. Snorrastofa í Reykholti lætur sitt ekki eftir liggja og undirbýr nú og kynnir vetrarstarf sitt, sem verður að venju með líflegum hætti.…Lesa meira

true

Spá fjölgun ferðamanna strax á næsta ári

Eftir töluverða fækkun erlendra ferðamanna á þessu ári gerir Hagfræðideild Landsbankans ráð fyrir að erlendum ferðamönnum fjölgi um 3% árið 2020 og um 5% árið 2021 og verði þá hátt í 2,2 milljónir, litlu færri en metárið 2017. Forystufólk rúmlega 40% fyrirtækja í ferðaþjónustu reiknar með samdrætti í tekjum á þessu ári en er almennt…Lesa meira

true

Yngri flokkar ÍA fögnuðu liðnu keppnisári

Lokahóf yngri flokka knattspyrnufélags ÍA var haldið með pompi og prakt í Akraneshöllinni sl. þriðjudag. Fjölmenni mætti á hófið og ungir og upprennandi knattspyrnukappar fengu að spreyta sig á knattþrautum og vítaskotum, þar sem þjálfarar yngri flokka stóðu vaktina. Að lokum var haldið pylsupartí og iðkendum í 3.-7. flokki veittar viðurkenningar. Í 2.-5. flokki voru…Lesa meira

true

Sumarhiti í septemberlok

Verulega hlýtt er í dag um vestanvert landið miðað við árstíma. Mesti dagshitinn mældist á Bláfeldi í Staðarsveit á Snæfellsnesi, eða 20 gráður. Í Hraunsmúla var 19,5 gráður og á Þingvöllum 19,1 gráða. Spáð er góðu veðri á morgun, en heldur lægri hita þó.Lesa meira

true

Varp tjaldsins brást með öllu á Suðurlandi

Í rannsókn sem vísindamenn við Háskóla Íslands framkvæmdi í sumar kom í ljós að varp tjaldsins brást með öllu á Suðurlandi. Fuglinn hafði ekkert aðgengi að fæðu. „Á svæðum inn til landsins, þar sem tjaldar reiða sig á ánamaðka, var mikill ungadauði í þurrkunum í sumar. Tjaldurinn komst ekki með gogginn í gegnum grjótharðan jarðveginn…Lesa meira

true

Selja búnað til rússneskrar saltfiskvinnslu

Rússneska fyrirtækið Polar Sea+ hefur fest kaup á saltfiskvinnslu frá Skaganum 3X á Akranesi og verður hann settur upp í Murmansk. Áætlað er að uppsetning hefjist snemma næsta árs. Búnaðurinn er hannaður með gæði og góða meðhöndlun hráefnis að leiðarljósi, þar sem fyrirtækið ætlar sér að flytja út hágæða vöru á kröfuharða markaði í suður…Lesa meira

true

Undirrita í dag samkomulag um uppbyggingu samgöngumannvirkja

Samkomulag ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára verður undirritað síðdegis í dag. Af því tilefni hefur forsætisráðuneytið boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum kl. 16:15 í dag, fimmtudaginn 26. september, þar sem samkomulagið verður kynnt. Viðstaddir verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra…Lesa meira