Fréttir

true

Umhverfismál aðalþema haustþings SSV

Árlegt haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram í Klifi í Ólafsvík næstkomandi miðvikudag. Þema þingsins að þessu sinni verður umhverfismál. Á þinginu verður fjárhagsáætlun og starfsáætlun SSV kynnt og lögð fram tillaga að Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024. Á þinginu starfa fjórir vinnuhópar og fjalla um fjármál og starfsemi SSV, samgöngumál, opinbera þjónusta og atvinnu- og…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2019

Löng hefð er fyrir því að sveitarfélagið Borgarbyggð veiti umhverfisverðlaun þar sem veittar eru viðurkenningar fyrir snyrtimennsku. Hafa verðlaunin verið afhent á Sauðamessu að hausti en þar sem hátíðin hefur nú lagst af var boðað til sérstakrar móttöku í Ráðhúsi Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag. Dagskránni stýrðu þau Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri og Margrét Vagnsdóttir formaður umhverfis-…Lesa meira

true

Flæðir yfir þjóðveginn við Þverá

Eins og íbúar um Vestanvert landið hafa orðið varir við hefur mikið rignt í landshlutanum undanfarna sólarhringa. Vatnavöxtur er mikill í ám og lækjum og er víða farinn að raska samgöngum. Skriða féll á Skarðsstrandarveg í gær, Svínadalsvegur fór í sundur við Súluá og Langavatnsvegur var ófær sökum vatnavaxta, svo dæmi séu tekin. Allvíða eru…Lesa meira

true

Sneru heim með gullverðlaun

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum var haldið í Garðabæ helgina 14.-15. september, sem og Íslandsmeistaramótið í bekkpressu. Kraftlyftingafélag Akraness átti tvo fulltrúa á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum, sem báðir fóru með sigur af hólmi í sínum flokkum. Kristín Þórhallsdóttir fagnaði sigri í 84 kg flokki kvenna. Hún lyfti 165 kg í hnébeygju, 80 kg í bekkpressu…Lesa meira

true

Berjadalsáin í ham

Neysluvatn Akurnesinga er sótt í Akrafjall, en stífla er neðarlega í hlíðum fjallsins og safnar vatni úr Berjadalsánni. Í rigningunum undanfarna daga hefur heldur betur vaxið í ánni. Þessar myndir voru teknar í morgun. Þar sést hvernig vatnið spýtist úr fossinum og á leið sinni í lónið. Á hinni myndinni er áin nokkru neðan við…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Mikil flóð í ám og lækjum á Vesturlandi

Vegna mikillar úrkomu er nú appelsínugul viðvörun í gildi fyrir Faxaflóa,Breiðafjörð og Vestfirði. Búist er við áframhaldandi vatnavöxtum í dag í ám og lækjum sem stórlega eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Slíkt hefur nú þegar raskað samgöngum þar sem vegir hafa farið undir vatn og ræsi gefið eftir. Í dag er það einkum sunnanvert…Lesa meira

true

Fræðslufundur framundan um matvælasvindl

Þriðjudaginn 24. september standa Matvælastofnun og Matís fyrir fræðslufundi um matvælasvindl (food fraud). Fundurinn verður haldinn í salarkynnum Matís að Vínlandsleið 12 í Reykjavík og hefst kl. 13:00. Er hann opinn öllum sem áhuga hafa á umfjöllunarefninu. Fræðslufundurinn er hluti af þriggja ára norrænu verkefni, sem styrkt er af norrænu Ráðherranefndinni. Sérstaklega eru boðaðir á…Lesa meira

true

Landsæfing björgunarsveitanna fyrirhuguð

Landsæfing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer fram í Snæfellsbæ og nágrenni laugardaginn 5. október næstkomandi. „Einingar á svæði 5 hafa unnið að undirbúningi síðustu mánuði og stefnir í að æfingin verði hin glæsilegasta. Verkefnin verða með fjölbreyttu sniði og verður eitthvað í boði fyrir alla; bátaverkefni, drónar, fjallabjörgun, fyrsta hjálp, leitarverkefni, rústabjörgun, straumvatnsbjörgun, kafaraverkefni, sleðaverkefni, aðgerðarstjórn, hundaverkefni…Lesa meira

true

Anna Björk opnar myndlistarsýningu í Safnahúsinu

Laugardaginn 28. september kl. 13 verður opnuð ný myndlistarsýning í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar.  Nefnist hún „Litabækur og litir“ og er fyrsta einkasýning Önnu Bjarkar Bjarnadóttur sem annars starfar sem framkvæmdastjóri hjá Advania en er einnig íþróttafræðingur fyrir utan að sækja nám í myndlist. Anna Björk er fædd og uppalin í Borgarnesi. Anna Björk segir…Lesa meira

true

Skriða féll á Skarðsstrandarveg

Aurskriða lokar nú veginum undir Melahlíð á Skarðsströnd, utarlega á ströndinni milli Ballarár og Klofnings. Að sögn Trausta Bjarnasonar, bónda á Á, er búið að vera mikið vatnsveður á Skarðsströnd og árnar þar kolmórauðar að lit við alla bakka. Trausti var á ferðinni í dag og kvaðst einnig hafa séð spýju úr hlíðinni fyrir ofan…Lesa meira