Fréttir

true

Mega selja mjöl til Kína

Sex íslenskar fiskimjölsverksmiðjur hafa fengið heimild til útflutnings á fiskimjöli og lýsi til Kína; verksmiðjur Brims á Akranesi og Vopnafirði, verksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og Seyðisfirði, Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði. RÚV greinir frá. Undanfarin fjögur ár hafa Matvælastofnun, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og utanríkisráðuneytið unnið að gerð samnings um heilbrigðiskröfur og eftirlit með…Lesa meira

true

Taka vel í beiðni um skólasel á Kleppjárnsreykjum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var kynnt erindi nokkurra foreldra barna sem stunda nám við Grunnskóla Borgarfjarðar, þess efnis að sett verði upp skólasel á Kleppjárnsreykjum. „Byggðarráð lýsir vilja sínum til þess að stofna skólasel leysi það úr þeirri stöðu sem uppi er. Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar í fræðslunefnd til frekari umfjöllunar,“…Lesa meira

true

Sóley mætt aftur til dælingar í Grundarfirði

Dæluskipið Sóley er mætt aftur til að dæla efni í höfnina í Grundarfirði. Skipið kom mánudagskvöldið 26. ágúst og hófst strax handa við dælingu. Efnið er tekið einhverjum hundruð metrum frá höfninni og dælt aftur niður þar. Skipið verður í Grundarfjarðarhöfn næstu daga til að dæla í undirstöðurnar á nýju höfninni og það styttist óðum…Lesa meira

true

Landsliðið tók á móti aðdáendum

Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu hélt opna æfingu á Akranesvelli síðastliðinn miðvikudag. Um var að ræða lokaæfingu liðsins fyrir fyrsta leik gegn Ungverjum í gærkvöldi, sem jafnframt var fyrsti leikur liðsins í undankeppni EM. Fyrir æfinguna tók landsliðið á móti aðdáendum í hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum, þar sem aðdáendum gafst kostur á að hitta leikmennina. Fjölmargir…Lesa meira

true

Veðrið samkvæmt gamalli trú helst óbreytt í 20 daga hið minnsta

Í dag, 29. ágúst, er Höfuðdagur. Ber hann nafn sitt af því að þennan dag var Jóhannes skírari afhöfðaður, en Heródes konungur Antipas lét höggva af honum höfuðið vegna óskar Salóme, fósturdóttur sinnar, árið 31 eftir krist. Segir svo frá í Nýja testamentinu, Matteusar guðspjalli, fjórtánda kafla: „En er afmælisdagur Heródesar kom, dansaði dóttir Herodesar…Lesa meira

true

Norskir sjómenn fá allt að 277% hærra verð fyrir makríl

Í pistli sem Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ ritar á Facebook í gær vekur hann máls á verðmun á makríl innanlands og í Noregi. Vill hann að fram fari opinber rannsókn á verðlagningu á uppsjávarafla hjá sjávarútvegsfyrirtækjum sem eru með veiðar og vinnslu á sömu hendi. Vísar Vilhjálmur til nýlegrar skýrslu Verðlagsstofa…Lesa meira

true

Persónulegar ávirðingar féllu á fundi bæjarstjórnar

Upphlaup varð á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag. Í umræðum um skýrslu bæjarstjóra kvaddi Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingar sér hljóðs. Í ávarpi sínu kvartaði hún sáran undan samskiptum sínum við Rakel Óskarsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í minnihluta. Gerður Jóhanna vísaði þar til funda sem hún sat í sumar sem varafulltrúi í bæjarráði sem starfaði í…Lesa meira

true

Ljúka endurgerð stakkstæða á Breiðinni

Nú sér fyrir endan á lagfæringum gamalla stakkstæða á Breiðinni á Akranesi. Nemendur á fyrsta ári í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fengu í vikunni leiðsögn um réttu handtökin hjá Unnsteini Elíassyni torf- og grjóthleðslumanni frá Ferjubakka. Unnsteinn hefur komið að fjölda verkefna m.a. í Borgarfirði. Nemendurnir eru í áfanga sem nefnist byggingafræði þar…Lesa meira

true

Rallýkeppni hefst í dag víðsvegar um Vesturland

Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallýi; Rallý Reykjavík, fram fer dagana 29. – 31. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni fer stærsti hluti keppninnar fram á Vesturlandi, það er í Borgarfirði sem og á Snæfellsnesi. Einn Borgfirðingurinn; Aðalsteinn Símonarson mætir til leiks ásamt Valdimari Jóni Sveinssyni á MMC Lancer Evo 7, en þetta er fyrsta keppnistímabil þeirra…Lesa meira

true

Töfrandi tónar Valgerðar

Söngkonan Valgerður Jónsdóttir boðaði til tónleika í Stúkuhúsinu á Akranesi að kvöldi síðasta fimmtudags. Þar endurflutti hún dagskrána Töfrandi tóna frá Írlandi, sem flutt var á Írskum dögum í júlí síðastliðnum. Þá komust færri að en vildu og því ákveðið að blása til annarra tónleika nú. Valgerður kom fram ásamt fríðum flokki hljóðfæraleikara og söng…Lesa meira