Fréttir

true

Líta á hvern nemanda sem einstakling en ekki kennitölu

Um 600 nemendur verða í námi í vetur í Háskólanum á Bifröst en um 85% nemenda eru í fjarnámi. Háskólagátt er þegar hafin en skólasetning hennar var síðastliðinn föstudag. Skólasetning hjá grunn- og meistaranámi verður svo í dag, 22. ágúst. „Við eigum von á því að staðnemum fjölgi nokkuð vegna fleiri erlendra nemenda. Við væntum…Lesa meira

true

Kári gerði jafntefli í Garðinum

Knattspyrnufélagið Kári og Víðir skyldu jöfn í háspennuleik þegar liðin áttust við í 17. umferð annarrar deildar í knattspyrnu í gær. Leikið var á Nesfisk-vellinum í Garði. Skagamenn skoruðu fyrsta mark leiksins. Á 25. mínútu kom Eggert Kári Karlsson sínu liði yfir. Héldu þeir forystunni út fyrri hálfleik og leiddu í hléi. Í síðari hálfleik…Lesa meira

true

Færir öllum leikskólum landsins gjöf

Eins og greint var frá í Skessuhorni í vikunni færði Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur öllum leikskólum á Akranesi námsefni að gjöf sem ætlað er að bæta málþroska barna. En Bryndís gerir gott betur og í samstarfi við Ikea, Lýsi, Marel, Raddlist og hjónin Björgólf Thor Björgólfsson og Kristínu Ólafsdóttur mun hún færa öllum leikskólum á landinu…Lesa meira

true

Sótti slasaða konu í Stykkishólm

Þyrla Landhelgisgæslu Íslands lenti í Stykkishólmi í gær og sótti slasaðan ferðamann sem hafði dottið á göngu. Eldri hjón á ferðalagi með skemmtiferðaskipi brugðu sér í gönguferð um Hólminn á meðan skipið lá þar bundið við bryggju. Laust eftir kl. 14:00 voru þau á göngu við Skúlagötu, fyrir neðan Stykkishólmskirkju, þegar konan missti jafnvægið og…Lesa meira

true

Eldri kylfingar á Íslandsmóti á Garðavelli í dag

Íslandsmót eldri kylfinga í pútti (60+) fer fram á Garðavelli á Akranesi í dag. Mótið hefst klukkan 10:45 og fyrirhugað að því ljúki um nónbil. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri mun setja mótið. Rétt innan við hundrað kylfingar eru skráðir til leiks. Veðrið mun leika við spilara í dag, en einmuna veðurblíða er um allt vestanvert…Lesa meira

true

Náttúru- og umhverfisfræði slær öll fyrri aðsóknarmet

Það eru rúmlega 500 nemendur skráðir til náms við Landbúnaðarháskóla Íslands nú þegar kennsla fer að fara á fullt þetta skólaárið. Nýnemadagar voru í vikunni, dagana 19.-20. ágúst, og hófst kennsla samkvæmt stundaskrá í gær, miðvikudaginn 21. ágúst. „Við erum að fara inn í nýtt skólaár með nýja stefnu fyrir skólann til næstu fimm ára,“…Lesa meira

true

Nýr lögreglubíll tekinn í notkun

Lögreglan á Vesturlandi tók nýja lögreglubifreið í notkun í síðustu viku. Um er að ræða Landrover Discovery, fullbúinn lögreglubíl sem er auk þess sérútbúinn fyrir umferðareftirlit. „Á þessum bíl verður fyrst og fremst haft eftirlit með atvinnutækjum sem eru á ferðinni, en lögregla hefur eftirlit með farmi flutningabíla, fylgist með því að hvíldartímaákvæðum sé fylgt…Lesa meira

true

Þorpið í Flatey er verndarsvæði í byggð

Bókhlaðan í umsjá Þjóðminjasafnsins   Þorpið í Flatey verður eftirleiðis skilgreint sem verndarsvæði í byggð. Í því felst að það ber að varðveita í sem upprunalegastri mynd. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, undirrituðu staðfestingu þess efnis við hátíðlega athöfn síðastliðinn laugardag. Við sama tækifæri afhenti Reykhólahreppur íslenska ríkinu bókhlöðuna í…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð haldin í tólfta sinn

Nokkur fjöldi gesta sótti Ólafsdal í Dölum heim síðastliðinn laugardag þegar árleg hátíð Ólafsdalsfélagsins var haldin í tólfta sinn. Veðurguðirnir voru ekki að sýna sínar bestu hliðar á Vesturlandi um helgina þannig að aðlaga þurfti framkvæmd og skipulag hátíðarinnar í samræmi við það. Áður en formleg dagskrá hófst var boðið upp á gönguferð að víkingaaldarskálanum…Lesa meira

true

Flugslys í Svefneyjum

Flugslys varð í Svefneyjum á Breiðafirði síðdegis síðastliðinn fimmtudag. Flugvél í flugtaki fékk á sig vindhviðu undir vænginn með þeim afleiðingum að flugmaðurinn missti stjórn á vélinni. Vélin fór fram af flugbrautinni og lenti ofan í fjöru þar sem hún steyptist fram fyrir sig og endaði á hvolfi. Flugmaður og farþegi reyndust ómeiddir og komust…Lesa meira