Fréttir

true

Ólafsdalshátíð verður á morgun, laugardag

Ólafsdalshátíð verður haldin í tólfta sinn í Ólafsdal við Gilsfjörð laugardaginn 17. ágúst. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Að morgni laugardags, kl. 11:00 verður boðið upp á tvær gönguferðir. Annars vegar að víkingaaldarskálanum sem var uppgötvaður árið 2017. Fræðst verður um minjar á leiðinni og það nýjasta varðandi uppgröftinn, undir leiðsögn Birnu…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í hrútadómum er framundan

Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er svo stærsta samkoma ársins, Íslandsmeistaramótið í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins segir að undirbúningur fyrir helgina gangi vel: „Það er alltaf góð þátttaka…Lesa meira

true

Danskir dagar framundan í Stykkishólmi

Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Danskir dagar í Stykkishólmi verður haldin dagana 15. -18. ágúst. Hátíðin er ein af elstu bæjarhátíðum á landinu og hefur verið haldin hátíðlega frá árinu 1994 og fagnar hátíðin í ár því aldarfjórðungsafmæli. Líkt og í fyrra er skipulag hátíðarinnar í höndum starfsmanna safnanna ásamt fleirum. Ár hvert flykkist fólk í Hólminn…Lesa meira

true

Bætt aðgengi að Eldborg

Í sumar hafa starfsmenn á vegum Umhverfisstofnunar, auk sjálfboðaliða, unnið að stígagerð að og á hinni gömlu eldstöð Eldborg í Hnappadal á Snæfellsnesi. Eldborg er eins og margir þekkja formfagur gjallgígur sem rís 60 metra yfir hraunið í kring og er stærstur gíga í stuttri gossprungu. Sjálf Eldborg er 200 metrar í þvermál og 50…Lesa meira

true

„Öllum finnst ruslmatur góður“

Hjónin Daniel Ivánovics og Eva Helgadóttir opnuðu matarvagninn Junkyard á Akranesi í mars á þessu ári. Hefur hann frá opnun fengið afar góðar viðtökur, bæði heimamanna og gesta bæjarins. „Hugmyndina að matarvagni höfum við gengið með í maganum undanfarin átta ár eða svo,“ segja þau. „Ástæðan fyrir því að við ákváðum að opna vagn en…Lesa meira

true

Skógræktarfélag Ólafsvíkur í Réttarskógi

Félagsmenn í Skógræktarfélagi Ólafsvíkur hafa í mörg ár unnið gott starf í uppgræðslu og gróðursetningu trjáplantna í Ólafsvík. Árið 2018 var óskað eftir tillögum að nafni á skóginn þar sem hann hefur aldrei hlotið fórmlegt nafn. Á aðalfundi félagsins síðastliðinn vetur var ákveðið að skógurinn fengi nafnið Réttarskógur. Fer honum það nafn einkar vel enda…Lesa meira

true

Neysluvatnsból að þorna upp í Dölum

Miklir þurrkar hafa einkennt veðráttuna í sumar líkt og Skessuhorn hefur ítarlega fjallað um. Afleiðingarnar eru af ýmsum toga, þ.á.m. aukin hætta á gróðureldum, vatnslitlar ár og minni uppskera hjá bændum. Hjá bændum og sumarhúsaeigendum hefur borið á því að neysluvatnsból séu að þorna upp. Á kúabúinu í Miðskógi í Dölum búa þau Skúli Hreinn…Lesa meira

true

Glóð komst í einangrun

Slökkvilið Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar var kallað út eftir hádegi í dag. Glóð hafði komist í einangrun þegar verið var að logsjóða í húsnæði Bifreiðaþjónustu Snæfellsness og Rútuferða ehf. við Sólvelli 5 í Grundarfirði. Vegfarendi sá reyk leggja frá húsinu og gerði viðbragðsaðilum viðvart. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út en var aðstoð fljótlega afturkölluð þar…Lesa meira

true

Kvartettinn Umbra í Stykkishólmskirkju annað kvöld

Um nokkurra ára skeið hefur Listaháskóli Íslands sótt Stykkishólm heim með nemendur sína í tónlistardeildum. Nemendur dvelja þá um vikutíma í Stykkishólmi og samstarf og verkefni þvert á deildir. Afraksturinn er fjölbreytt tónleikahald í Stykkishólmi á meðan á verkefninu stendur auk þess sem nemendur og íbúar í Stykkishólmi gefst kostur á þátttöku í ýmsum smiðjum…Lesa meira

true

Íbúar hvattir til að senda inn tilnefningar vegna umhverfisviðurkenninga

Sveitarfélagið Borgarbyggð auglýsir í Skessuhorni í dag eftir tilnefningum um umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins 2019. Um árabil hafa verið veittar viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og eru íbúar hvattir til að leggja lóð á vogarskálina og benda á það sem vel er gert. Veittar verða viðurkenningar í fjórum flokkum: Snyrtilegasta býlið, snyrtilegasta lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta lóð við…Lesa meira