
Í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var rykið dustað af horfnum atvinnuháttum á Breiðinni á Akranesi. Starfsmenn garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar unnu þá að því að endurgera hluta stakkstæðanna, sem áður fyrr voru notuð til að breiða út saltfisk til þurrkunar. Verkið er hluti af heildarhönnun arkitektarstofunnar Landslags fyrir Breiðarsvæðið. Steinalögnin er unnin undir handleiðslu Unnsteins Elíassonar, torf- og…Lesa meira








