Fréttir

true

Lánshæfi Íslands óbreytt og horfur jákvæðar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s telur lánshæfi ríkissjóðs óbreytt. Álitið felur því ekki í sér endurskoðun á lánshæfiseinkun ríkissjóðs, sem er áfram A3 með jákvæðum horfum. Fyrirtækið telur styrk efnahagslífs Íslands meðal annars liggja í sveigjanleika, sterkri fjárhagsstöðu, samkeppnishæfni og hagstæðri íbúaþróun. Saman stuðlar þetta að langtíma hagvexti og hjálpar til við að mæta óhjákvæmilegum áföllum í…Lesa meira

true

Eldur í þaki La Colina

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út um kvöldmatarleytið í gær 5. ágúst. Þá hafði glóð komist í þak veitingastaðarins La Colina í Borgarnesi en þakið er torflagt og var orðið frekar þurrt. Engar skemmdir urðu á veitingastaðnum og náðu slökkviliðsmenn að bleyta í þakinu áður en eldur næði að brjótast út. Ljóst er að verr hefði…Lesa meira

true

Stakkstæðin á Breiðinni endurgerð

Í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var rykið dustað af horfnum atvinnuháttum á Breiðinni á Akranesi. Starfsmenn garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar unnu þá að því að endurgera hluta stakkstæðanna, sem áður fyrr voru notuð til að breiða út saltfisk til þurrkunar. Verkið er hluti af heildarhönnun arkitektarstofunnar Landslags fyrir Breiðarsvæðið. Steinalögnin er unnin undir handleiðslu Unnsteins Elíassonar, torf- og…Lesa meira

true

Guðmundur á Grund íbúi ársins

Greint var frá vali á íbúa ársins í Reykhólahreppi á hátíðinni Reykhóladögum sem haldin var um þarsíðustuhelgi. Íbúi ársins að þessu sinni er Guðmundur Ólafsson á Grund. Var hann tilnefndur fyrir greiðvikni sína og hjálpsemi, auk þess að hafa í áranna rás gegnt fjölda trúnaðarstarfa í samfélaginu, sem oddviti, slökkviliðsstjóri og fleira. Fjölmargar tilnefningar bárust…Lesa meira

true

Gengu þvert yfir Ísland frá austri til vesturs

Þeir Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson lögðu af stað í göngu um öræfi Íslands í lok júní þegar þeir lögðu af stað frá Lóni á Austurlandi. Þeir gengur þvert yfir hálendi Íslands og niður í Borgarfjörð í vestri og náðu á áfangastað í fjörunni við Grjóteyri rétt utan við Borgarnes á mánudagskvöldið. Þá höfðu…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Reykhóladögum

Reykhóladagar voru haldnir hátíðlegir um liðna helgi, frá föstudegi til sunnudags. Gestir sem heimamenn skemmtu sér í þarabolta og kassabílarallýi, kíktu á markað í íþróttahúsinu og karnival í Hvanngarðabrekku. Hin árlega dráttarvélasýning og keppni í dráttarvélafimi var að sjálfsögðu á sínum stað sem og kvöldvaka og dansleikur, svo fátt eitt sé nefnt. Sunnudagurinn var helgaður…Lesa meira

true

Hlaut heiðursviðurkenningu á Ólympíuleikunum í stærðfræði

Skagamaðurinn Andri Snær Axelsson keppti ásamt fimm öðrum Íslendingum á Ólympíuleikunum í stærðfræði sem fram fóru í Bath á Englandi nú fyrir skömmu. Náði Andri Snær þar frábærum árangri og hlaut heiðursviðurkenningu. „Þetta var alveg rosalega skemmtilegt. Það var mjög sérstakt að taka þátt og eiginlega smá súrrealískt,“ segir Andri Snær þegar Skessuhorn heyrði í…Lesa meira

true

Óskar eftir konum til að taka þátt í gjörningi

Danshöfundurinn Anna Kolfinna er einn þeirra listamanna sem tekur þátt í listahátíðinni Plan-B sem haldin verður í Borgarnesi í næstu viku. Á hátíðinni stendur hún fyrir gjörningi í Borgarneskirkju föstudaginn 9. ágúst og leitar hún að konum á aldrinum 12 til 80 ára frá Borgarnesi og nágrenni til að taka þátt í honum. Gjörningurinn Önnu…Lesa meira

true

Endurmeti birgðastöðu á lambahryggjum

Landbúnaðarráðherra hefur óskað eftir því að ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara endurmeti hvort þörf sé á því að opna tollkvóta á lambahryggjum í ljósi nýrra upplýsinga sem nefndinni hafa borist frá framleiðendum. Nefndinni ber að skila niðurstöðu í vikunni. Frá því í vor hefur nefndin reglulega fengið tilkynningar um skort á lambahryggjum frá dreifingaraðilum.…Lesa meira

true

Franskt skemmtiferðaskip á Akranesi

Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal kom til hafnar á Akranesi í þriðja skiptið síðasta laugardag. Skipið kom síðast á Akranes í ágúst í fyrra. Le Boreal var smíðað árið 2010 og er tæplega 11.000 brúttótonn, 142 metrar að lengd, 18 metrar að breidd og með djúpristu upp á 4,8 metra. Le Boreal ferjar 264 farþega, auk…Lesa meira