Fréttir

true

Búið að opna Ískofann í Stykkishólmi

Nýir eigendur teknir við rekstrinum   Ískofinn í Stykkishólmi var opnaður á nýjan leik laugardaginn 13. júlí síðastliðinn. Svava Pétursdóttir keypti rekstur vagnsins ásamt Elvari Má Eggertssyni, eiginmanni sínum. Hún segir kaupin hafa borið brátt að. „Þetta var skyndihugdetta,“ segir Svava létt í bragði í samtali við Skessuhorn á mánudaginn. „Kofinn er búinn að vera…Lesa meira

true

Fegra bæinn um eina hellu í einu

Við Borgarbrautina í Borgarnesi var ný gangstétt hægt og rólega að taka á sig mynd í liðinni viku. Vakti athygli vegfarenda að einungis ungar stelpur voru að störfum. Þessar öflugu stelpur eru starfsmenn Sigur-garða sf. á Laufskálum í Borgarfirði sem er rótgróið skrúðgarðyrkjufyrirtæki sem býður ýmsa þjónustu við lóðir, innkeyrslur og athafnasvæði í samfélaginu. Verk…Lesa meira

true

Tap í Kaplakrikanum

Skagakonur fóru fýluferð í Hafnarfjörðinn í gær þegar þær töpuðu með einu marki gegn þremur á móti toppliði FH í tíundu umferð 1. deildar kvenna. Mikið rú og stú hefur verið í kringum ÍA liðið síðustu vikur. Fyrst þurfti Bandaríski markvörðurinn, Tori Ornela, frá að hverfa og í kjölfarið óskaði þjálfarateymið, Helena Ólafsdóttir og Aníta…Lesa meira

true

Súrt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í 14. umferð 3. deildar karla í gærkvöldi. Gestirnir mættu ákveðnari til leiks og sóttu hart að heimamönnum á upphafsmínútunum. Stefán Ingi Sigurðarson kom Augnabliki yfir á 19. mínútu eftir góða sókn. Skallagrímsmenn sýndu þó engin merki þess að…Lesa meira

true

Boltinn vildi ekki í netið

Víkingur Ó. og Þróttur R. gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 14. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Ólafsvík í gærkvöldi. Heimamenn voru öflugri í fyrri hálfleik, áttu ágætis marktilraunir en sköpuðu sér þó engin dauðafæri. Eftir hálftíma leik áttu Ólafsvíkingar langt innkast inn á teig og skot framhjá eftir at…Lesa meira

true

Tvö fjórhjólaslys á sama tíma

Tvö fjórhjólaslys urðu á sama tíma með aðeins um 100 metra millibili síðastiðinn sunnudag, við Langá á Mýrum í grennd við Sveðjufoss. Að sögn lögreglu voru mennirnir á ferð ásamt hópi fjórhjólamanna. Þegar hópurinn ók hjólum sínum upp barð nokkuð vildi ekki betur til en svo að mennirnir tveir veltu hjólunum yfir sig. Þeir voru…Lesa meira

true

Ýmist fjölgun eða fækkun í vestlenskum golfklúbbum

Breytingar í félagatali golfklúbbanna á Vesturlandi eru afar mismunandi samkvæmt samantekt sem Golfsamband Íslands hefur nýverið gert. Mest fjölgun var hjá Gkl. Jökli í Snæfellsbæ, eða 37%. Þá fjölgaði félögum um 17% í Gkl. Glanna í Norðurárdal, 15% í Gkl. Staðarsveitar og 14% í Gkl. Borgarness á Hamri. Félagafjöldi stóð í stað hjá Golfklúbbnum Leyni…Lesa meira

true

Reykhóladagar verða um helgina

Hinir árlegu Reykhóladagar verða haldnir hátíðlegir dagana 26. til 28. júlí. Dagskráin hefst á kassabílarallýi á Reykhólum kl. 15:00 á föstudag. Því næst verður keppt í þarabolta, en sá viðburður hefur rækilega fest sig í sessi á hátíðinni. Íbúar bjóða heim í þemapartí og/eða súpu um kvöldið áður en blásið verður til viðburðar í Sjávarsmiðjunni.…Lesa meira

true

Brennan hefur gefið vel í sumar

„Já, við erum í Brennunni og það gengur frekar rólega í laxinum, en þess betur í sjóbirtingnum,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir en Brennan hafði þá gefið 130 laxa í sumar og fjöldan allan af sjóbirtingi. „Brennan er svakalega lituð þessa dagana í hlýindunum, en laxinn er að sýna sig en hefur ekki veiðst síðustu daga.…Lesa meira

true

Markaðsbrestur víða um land

Fyrirhugað að ÍLS bjóði nýjar tegundir lána   Fyrirhugað er að gera Íbúðalánasjóði kleift að bjóða nýjar tegundir lána til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur birt minnisblað þess efnis í samráðsgátt stjórnvalda. Þar eru kynntar þær aðgerðir sem fyrirhugað er að ráðast í til að svo megi verða. „Fyrirhugaðar…Lesa meira