Fréttir

true

Gestur úr Elkem til Veitna

Stjórn Veitna ohf. hefur ráðið Gest Pétursson forstjóra Elkem Ísland sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu mun það skýrast von bráðar hvenær Gestur hefur störf. „Það er mikil tilhlökkun að tilheyra brátt öflugu teymi hjá traustu fyrirtæki með skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn um þá mikilvægu…Lesa meira

true

Héraðsdómur Vesturlands lokaður tímabundið

Héraðsdómur Vesturlands er lokaður frá 1. júlí til og með 30. ágúst vegna framkvæmda við húsnæði dómsins. Verið er að breyta því og stækka skjalageymslu í húsinu. Að sögn Guðfinns Stefánssonar, aðstoðarmanns Héraðsdómara Vesturlands, þá var ákveðið að loka skrifstofunni á meðan sumarleyfi stæðu sem hæst og gefa verktökum á sama tíma nóg svigrúm til…Lesa meira

true

Niðurrif langt undir kostnaðaráætlun

Verktakafyrirtækið Work North ehf hefur nú lokið niðurrifi þeirra hluta mannvirkja Sementsverksmiðjunnar sem Akraneskaupstaður ákvað að láta rífa við Faxabraut. Svæðið hefur nú verið sléttað og sáð í það. Greina má græna slikju þar sem fyrstu grösin eru nú að teigja sig upp úr moldu. Uppgröftur úr byggingarlóðum í nýrri hverfum bæjarins var notaður sem…Lesa meira

true

TF GRÓ fór í sitt fyrsta útkall um helgina

Nýjasta þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRÓ, fór í sitt fyrsta útkall á laugardaginn. Sótti hún þá mann sem slasast hafði á fæti á Fimmvörðuhálsi. Þyrla þessi er seinni af tveimur sem leigðar voru til landsins, en áður hafði leiguþyrlan TF-EIR komið í vetur. TF GRÓ er af gerðinni Super Puma, árgerð 2010 og er í eigu norska…Lesa meira

true

Olís kolefnisjafnar allan rekstur

Olíuverzlun Íslands hefur kolefnisjafnað allan rekstur félagsins en um er að ræða akstur, flug og dreifingu eldsneytis til viðskiptavina félagsins um allt land. Verkefnið er unnið í samstarfi við Landgræðsluna en Olís og Landgræðslan hafa átt í samstarfi undanfarin 30 ár og undirrituðu sl. föstudag samstarfssamning til næstu fimm ára. ,,Við erum mjög ánægð með…Lesa meira

true

Grátlegt tap Skagakvenna

ÍA mátti sætta sig við svekkjandi 1-2 tap gegn Tindastóli þegar liðin mættust í níundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu á Akranesi á föstudagskvöld. Gestirnir skoruðu tvö mörk á lokamínútunum og stálu sigrinum. Skagakonur mættu ákveðnar til leiks en það var engu að síður Tindastólsliðið sem var heilt yfir öflugra og fékk betri færi…Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli Víkings

Víkingur Ó. og Grótta skildu jöfn, 2-2, í dramatískum leik í 13. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Seltjarnarnesi á laugardaginn var. Fyrri hálfleikur var fjörugur í meira lagi, opinn og skemmtilegur. Besta færi fyrri hálfleiks fengu Ólafsvíkingar á 28. mínútu. Ívar Reynir Antonsson átti frábæra sendingu fyrir markið á Sallieu Tarawallie…Lesa meira

true

Auknar kröfur um úrbætur í Efstadal II

Síðastliðinn fimmtudag voru rannsökuð sýni frá sex einstaklingum og greindist enginn með E. coli sýkingu. Alls hefur E. coli sýking því verið staðfest hjá 21 einstaklingi, þar af eru 19 börn og tveir fullorðnir. Ekkert barn er nú inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins af völdum STEC E. coli og enn er beðið eftir staðfestingu á greiningu…Lesa meira

true

Jafnt norðan heiða

ÍA og KA skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Akureyri í gærdag. Leikurinn fór fjörlega af stað og Skagamenn komust yfir strax á 10. mínútu leiksins. Stefán Teitur Þórðarson tók aukaspyrnu frá hægri, sendi boltann fyrir markið á Viktor Jónsson sem skoraði…Lesa meira

true

Stefnir í stærsta ferðaþjónustudag frá upphafi

„Í dag er stærsti skemmtiferðaskipadagurinn sem við höfum haft í Grundarfjarðarhöfn frá upphafi. Við fáum þrjú skip í Grundarfjarðarhöfn,“ segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Skemmtiferðaskipin sem koma í dag eru Sapphire Prinsess, Star Breeze og Astoria. Hátt í fjögur þúsund farþegar eru í skipunum.  Björg segir metfjölda gesta á tjaldsvæðinu bæjarins. „Þetta…Lesa meira