Fréttir

true

Brotlenti við flugvöllinn í Rifi

Fisflugvél missti afl og brotlenti við flutvöllinn í Rifi á Snæfellsnesi á laugardaginn. Tveir voru í vélinni og var annar þeirra fluttur með minniháttar áverka til aðhlynningar á heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. Hinn sakaði ekki. Vélin var komin nokkra metra á loft þegar hún missti afl og brotlenti.  Vélin er talsvert skemmd.Lesa meira

true

Gott hljóð í strandveiðimönnum

Fleiri bátar hafa stundað strandveiðar í sumar miðað við í fyrra. Í þarsíðustu viku voru 607 bátar komnir með strandveiðileyfi, en voru 536 sama dag 2018. Hærra fiskverð og lægri veiðigjöld á sinn þátt í því að fleiri halda til strandveiða þetta árið, eftir fækkun undanfarinna ára. Skagamaðurinn Stefán Jónsson á Grími AK-1 aflaði mest…Lesa meira

true

Meðalævin lengist

Meðalævilengt kvenna á Íslandi var 84,1 ár á síðasta ári en 81 ár hjá körlum. Meðalævilengt sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali eftir ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjölda. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað undanfarinn áratug og því má reikna með að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd…Lesa meira

true

Makrílveiðar fóru vel af stað hjá skipum HB Granda

Víkingur AK kom til Vopnafjarðar síðdegis í gær með um 790 tonn af makríl. Þetta er önnur veiðiferð skipsins á vertíðinni, en áður hefur Venus NS landað tvívegis á Vopnafirði þannig að makrílvinnsla skipa HB Granda er komin í fullan gang fyrir austan. ,,Vertíðin fer betur af stað nú en í fyrra,“ segir Hjalti Einarsson,…Lesa meira

true

Óska tilnefninga um framúrskarandi unga Íslendinga

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI Íslandi. Þau eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni. „Þetta er hvatning og viðurkenning fyrir ungt fólk sem kemur til með að hafa áhrif í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá JCI Íslandi. „Framtíðarsýn JCI Íslands…Lesa meira

true

Kellingar hylltu heiðursborgara

Hin árlega söguganga fór fram á Írskum dögum á Akranesi fyrr í mánuðinum. Gangan var á vegum Bókasafns Akraness og Skagaleikflokksins. Að þessu sinni voru óvenju margir þátttakendur, eða um 100 talsins, að sögn Hallberu Jóhannesdóttur, sem er ein af ,,Kellingunum,” eins og þær kalla sig. Stansað var á nokkrum stöðum sem tengjast Braga Þórðarsyni…Lesa meira

true

Bjóða að nýju út lengingu Norðurgarðs

Vegagerðin og Snæfellsbær auglýsa í Skessuhorni vikunnar að nýju útboð á lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík. Verkið var boðið út í vor en einungis eitt tilboð barst og reyndist það um 80% yfir kostnaðaráætlun. Var því ákveðið að bjóða verkið út að nýju og rýmri tímafrestur gefinn við að ljúka því. Samkvæmt útboðsauglýsingu skal lengingu Norðurgarðs…Lesa meira

true

Benda á ábyrgar smitvarnir í tengslum við dýr

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun hvetja alla til að stunda ábyrga hegðun varðandi snertingu við dýr, umhverfi þeirra og afurðir. Almennt hreinlæti og handþvottur er lykilatriði til að koma í veg fyrir að matvæli og fólk smitist. „Undanfarnar vikur hefur fólk sýkst af eiturmyndandi E. coli (STEC) bakteríu á bænum Efstadal 2 og tengist það…Lesa meira

true

Markaregn og dramatík

Kári tapaði gegn Þrótti frá Vogum í dramatískum markaleik þegar liðin mættust í tólftu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Eitt mark var skorað í fyrri hálfleik og þar var á ferðinni Miroslav Babic, sem kom gestunum af Suðurnesjum yfir á 21. mínútu leiksins. Hlynur Sævar Jónsson jafnaði metin…Lesa meira

true

Lítur á þetta sem sumarleik og bendir á að aðrir séu á Face-appinu

Björn Bjarki Þorsteinsson, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og núverandi framkvæmdastjóri Brákarhlíðar í Borgarnesi, varpaði fyrr í vikunni fram á facebook síðu sinni þeirri hugmynd, að hvetja Harald Benediktsson bónda á Vestra-Reini og fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis til að gefa kost á sér til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Björn Bjarki segir umræðu að undanförnu í röðum Sjálfstæðismanna…Lesa meira