Fréttir

true

Fækkun ferðamanna var 16,7% í júní

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 195 þúsund í júnímánuði eða um 39 þúsund færri en í júní árið 2018. Fækkun milli ára nemur 16,7%. Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum. Í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%,…Lesa meira

true

Óvissustigi aflétt á Vesturlandi

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Vesturlandi, hefur aflétt óvissustigi sem lýst var yfir 11. júní síðastliðinn vegna hættu á gróðureldum á Vesturlandi. Það er mat lögreglunnar á Vesturlandi að telja megi að ástand sé að verða svipað og í venjulegu tíðarfari. Þessi ákvörðun var tilkynnt í gær. Því hafi verulega dregið úr eldhættu í…Lesa meira

true

Vill stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika

Hjónin Einar G.G. Pálsson og Guðrún Jónsdóttir hafa ásamt góðum nágrönnum sínum tekið holtið á milli Klettavíkur og Hamravíkur í Borgarnesi í fóstur og er Guðrún einnig ein þeirra sem hlúa að Suðurnesklettunum í bænum með Hollvinasamtökum Borgarness, en það verkefni er á vegum Borgarbyggðar. Um er að ræða að útrýma lúpínu á þessum svæðum…Lesa meira

true

Hringvegur 2 opnaður um leið og Dýrafjarðargöng

Vestfjarðastofa og Vesturlandsstofa skrifuðu í gær undir samstarfssamning sem snýr að þróun ferðamannaleiðarinnar Hringvegs 2. Um er að ræða ferðamannaleið sem er um 850 km löng og liggur um sjö sveitarfélög á Vestfjörðum auk Dalabyggðar á Vesturlandi. „Lagt er upp með að ferðaleiðin Hringvegur 2 verði aðdráttarafl fyrir svæðið allt árið, en það verður raunhæfur…Lesa meira

true

Áhættumatsnefnd í landbúnaði

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað áhættumatsnefnd vegna matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru eins og mælt er fyrir um í matvælalögum og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Hlutverk nefndarinnar er að veita og hafa umsjón með framkvæmd vísindalegs áhættumats á sviði matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru. Með vísindalegu áhættumati er…Lesa meira

true

Vel heppnuð Skotthúfa á laugardaginn í Stykkishólmi

Hin árlega þjóðbúningahátíð Skotthúfan var haldin í Norska húsinu – Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla síðastliðinn laugardag. Hátíðin hófst með fyrirlestri í Eldfjallasafninu þar sem Guðrún Hildur Rosenkjær hélt fyrirlestur um endurgerðar kvenpeysur frá 19. öld. Fyrirlesturinn var vel sóttur og kom þar margt fróðlegt og skemmtilegt fram. Að fyrirlestri loknum var gestum í þjóðbúningum boðið…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið var um helgina

Snæfellsjökulshlaupið var haldið í níunda sinn á laugardaginn en hlaupið var frá Arnarstapa yfir Jökulháls og enduðu hlauparar 22 kílómetrum síðar í Ólafsvík. Snæfellsjökulshlaupið er orðið með vinsælustu hlaupakeppnum landsins og voru að þessu sinni skráðir keppendur um 140 talsins. Hjónin Fannar Baldursson og Rán Kristinsdóttir hafa haft veg og vanda að hlaupinu alla tíð…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir í gangi í Reykholti

Á liðnum dögum hafa ýmsar framkvæmdir verið í gangi í Reykholti í Borgarfirði. Unnið hefur verið við hellulögn og fegrun umhverfis Snorralaug þar sem tugþúsundir gesta koma við á hverju ári. Þá hófust í vor að nýju eftir nokkuð hlé framkvæmdir við stækkun Fosshótels Reykholti. Viðbyggingin er nú ríflega fokhelt en í henni verða 28…Lesa meira

true

Stærsta Lopapeysan hingað til

Lopapeysan verður haldin í sextánda sinn á Írskum dögum á laugardagskvöldið næstkomandi. Um er að ræða stórtónleika í anda sveitaballanna sem haldin voru hér á árum áður. Lopapeysan hefur mikið vaxið frá fyrstu tónleikum og í ár verða tónleikarnir þeir stærstu hingað til. Það eru Vinir Hallarinnar með Ísólf Haraldsson í fararbroddi sem standa fyrir…Lesa meira

true

Smáprent opnað í stærra húsnæði á morgun

Smáprent á Akranesi mun opna í nýju og stærra húsnæði á morgun, fimmtudaginn 4. júlí, við Dalbraut 16. Smáprent er í eigu hjónanna Tinnu Óskar Grímarsdóttur og Axels Freyrs Gíslasonar og hefur undanfarið verið til húsa við Skagabraut 6. Hjá Smáprenti er hægt að fá prentun og merkingar á fatnað fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök…Lesa meira