
Í byrjun vikunnar hófust framkvæmdir við jarðvegsskipti undir væntanlega nýbyggingu björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi. Eins og kunnugt er gaf Borgarbyggð björgunarsveitinni 3.800 fm. lóð á Fitjum 2 undir björgunarmiðstöðina. Það var gert árið 2017 í tengslum við 150 ára verslunarafmæli Borgarness. Lóðin er á fallegum stað næst fyrrum mjólkursamlagshúsi, en ofan við gatnamót Snæfellsnesvegar og…Lesa meira








