Fréttir

true

Ástandið í þjóðfélaginu kallar á sveigjanleika háskóla

Námsgluggi opnaður á Bifröst 19. október Háskólinn á Bifröst tekur samfélagslega ábyrgð og gefur fólki kost á því að hefja nám í svonefndum Námsglugga á seinni hluta haustannar. „Þetta eru viðbrögð skólans við atvinnuástandinu sem skapast hefur vegna kórónuveirufaraldursins. Stjórnendur skólans líta svo á að greiður aðgangur að háskólanámi geti skipt sköpum fyrir fólk sem…Lesa meira

true

Sigraðir suður með sjó

Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Víði, 3-1, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var suður í Garði. Víðir er í harðri fallbaráttu nú undir lok mótsins en Káramenn eru öruggir með sæti sitt um miðja deild. Það voru enda heimamenn sem voru öflugra lið vallarins. Þeir komust yfir…Lesa meira

true

Ostóber er tími til að njóta osta

„Nú er runninn upp október mánuður en þriðja árið í röð heldur Mjólkursamsalan mánuðinn hátíðlegan undir yfirskriftinni „Ostóber – tími til að njóta osta“. Ostóber er tími til að fagna gæðum og fjölbreytileika í íslenskri ostagerð og með þessu framtaki vill MS hvetja landsmenn til að smakka nýja osta, prófa sig áfram með ostana í…Lesa meira

true

Talinn hafa brotið sóttkví

Íbúi á Vesturlandi er grunaður um að hafa brotið reglur um sóttkví síðastliðinn laugardag, þegar hann fór til Mosfellsbæjar og keypti sér mat á matsölustað. Málið var kannað og fengnar upplýsingar frá matsölustaðnum. Maðurinn viðurkenndi að hafa farið á matsölustaðinn í umrætt skipti. Málið er til rannsóknar og maðurinn gæti átt yfir höfði sér fjársekt…Lesa meira

true

Vilja afurðaverð næsta árs birt fyrir áramót

Vandi sauðfjárbænda var til umræðu á síðasta fundi byggðarráðs Dalabyggðar. Þar kemur fram að sveitarstjórnir Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps, auk byggðarráðs Húnaþings vestra, lýsi yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðaverðs nú í haust. Rifjuð er upp samantekt Landssamtaka sauðfjárbænda sem leiddi í ljós að afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda…Lesa meira

true

Malbik á Kjalarnesi uppfyllti ekki kröfur

Vegagerðin vekur í dag athygli á nýútkominni skýrslu um blæðingar í malbiki sem lagt var á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Um er að ræða fimm vegarkafla, þar á meðal á Kjalarnesi þar sem hjón á mótorhjóli létust í árekstri við húsbíl sem kom úr gagnstæðri átt. Hemlunarviðnámsmælingar vegakaflanna, utan eins, sýndu að þeir uppfylltu ekki kröfur…Lesa meira

true

Talsverð hreyfing á fylgi stjórnmálaflokkanna

Mikil hreyfing er á fylgi stjórnmálaflokkanna nú þegar um það bil ár er í næstu kosningar. Samkvæmt nýrri könnun sem Maskína vann fengi Sjálfstæðisflokkurinn tæplega 23% atkvæða ef kosið væri nú, Samfylkingin næstum 18, Píratar tæplega 16%, Viðreisn 14, VG rúmlega 10%, Framsóknarflokkurinn tæplega 8% og Miðflokkur og Flokkur fólksins milli 5 og 6 prósentustig.…Lesa meira

true

Brotajárn flutt frá Akranesi

Óvenjumikið líf var í Akraneshöfn í dag. Ekki var um að ræða starfsemi tengda sjávarútvegi sem flestir bæjarbúar myndu vilja sjá meira af. Flutningaskipið Fri Porsgrunn, 2.868 brúttótonna skip sem skráð er á Kýpur, lá við bryggju og lestaði brotajárn. Voru fimm gámaflutningabílar í stöðugum ferðum með brotajárnsgáma á milli Akraneshafnar og starfsstöðvar Terru við…Lesa meira

true

Notaður slökkvibíll keyptur í Reykholt

Undir lok síðustu viku fékk Slökkvilið Borgarbyggðar afhentan nýjan, en þó notaðan, bíl í tækjaflotann. Bíllinn er af Scania gerð, árgerð 1990, og hafði verið í notkun á hollenskum herflugvelli. Bíllinn er búinn 12 þúsund lítra tanki og fjögur þúsund lítra dælu (dæluafköst pr. mínútu). Uppi á þaki bílsins er svokallaður mónitor, eða vatnsbyssa sem…Lesa meira

true

Smituðum fækkar á Vesturlandi

Nú eru 23 í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 sjúkdóminn, skv. nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Hafa þrír í landshlutanum lokið einangrun frá því fyrir helgi. Flestir eru í einangrun í Stykkishólmi eða tólf, sjö á Akranesi, þrír í Grundarfirði og einn í Borgarnesi. Enginn er í einangrun á starfssvæði heilsugæslustöðvanna í Búðardal og…Lesa meira