Fréttir

true

Brúin komin yfir Höskuldsá

Nú í lok september var brúnni yfir Höskuldsá á Hellissandi komið fyrir, en brúna smíðaði Anton Gísli Ingólfsson seinnipart sumars, eins og greint var frá í Skessuhorni. Áður en brúnni var komið fyrir sá B.Vigfússon um að laga til og snyrta árbakkana. Einnig þurfti að koma fyrir vatnslögn í ánni sem er fyrir Saltportið. Árni…Lesa meira

true

Metfjöldi nýrra smita greindist á síðasta sólarhring

Í gær greindist metfjöldi kórónuveirusmita í þessari þriðju bylgju faraldursins á þessu ári. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá því að samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum hafi 99 smit verið greind, en þar af voru 59 í sóttkví. Þá greindist eitt virkt smit á landamærunum. Fimmtán eru inniliggjandi á Landspítalanum, fjórir þeirra eru á gjörgæsludeild og þrír af…Lesa meira

true

Framlengja undanþágur fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki

Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra…Lesa meira

true

Stefán og Tryggvi á förum frá ÍA

Knattspyrnumennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson eru á leið í atvinnumennsku og eru því á förum frá ÍA. Stefán hefur samið við Silkeborg IF, sem leikur í næstefstu deild í Danmörku en Tryggvi er á leið til norska liðsins Lilleström SK, sem sömuleiðis leikur í næstefstu deild þar í landi. Hvorki Tryggvi né…Lesa meira

true

Aparóla sett upp í Bjargslandi

Nýverið var lokið við uppsetningu á aparólu við leikvöllinn við Hrafnaklett í Bjargslandinu í Borgarnesi. Tækið kemur frá Jóhannei Helga og Co. og starfsfólk áhaldahúss Borgarbyggðar sá um að koma tækinu upp. „Með aparólu og nýjum ærslabelg á Wembley hefur afþreyingarmöguleikum verið fjölgað fyrir börn á öllum aldri í Bjargslandi, sem hefur verið langþráður draumur…Lesa meira

true

Mikið tjón þegar kornþurrkun í Laxárholti brann

Eldur kom upp í þurrkstöð fyrir korn á bænum Laxárholti á Mýrum í morgun. Mannskapur og búnaður frá öllum stöðvum Slökkviliðs Borgarbyggðar var kallaður á staðinn og sömuleiðis óskað eftir aðstoð frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar sem sendi bíl með One-Seven froðubúnaði og fjóra menn. Slökkvistarf gekk vel en aðstæður voru erfiðar þar sem eldurinn…Lesa meira

true

Ungir í SUF lýsa vantrausti á ráðherra

Á sambandsfundi ungra Framsóknarmanna um liðna helgi var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er litlu vægi landbúnaðarmála í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og lýst vantrausti á Kristján Þór Júlíusson ráðherra. „Ungt Framsóknarfólk lýsir yfir vantrausti á sitjandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Störf ráðherra á kjörtímabilinu hafa sýnt að ráðherra mismuni málaflokkum með þeim hætti að málefni landbúnaðar…Lesa meira

true

Stefán og Tryggvi á förum frá ÍA

Knattspyrnumennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson eru á leið í atvinnumennsku og eru því á förum frá ÍA. Stefán hefur samið við Silkeborg IF, sem leikur í næstefstu deild í Danmörku en Tryggvi er á leið til norska liðsins Lilleström SK, sem sömuleiðis leikur í næstefstu deild þar í landi. Hvorki Tryggvi né…Lesa meira

true

Eldur í kornþurrkun

Slökkvilið Borgarbyggðar var í morgun kallað út að bænum Laxárholti á Mýrum. Eldur kraumar í kornþurrkun í tanki sem staðsettur er inni í hlöðu. Að sögn Heiðars Arnar Jónssonar varaslökkviliðsstjóra er töluverður staðbundinn eldur í korninu og því erfitt fyrir slökkviliðsmenn að athafna sig. Slökkvilið Borgarbyggðar sendi tiltækan búnað og mannskap en hefur auk þess…Lesa meira

true

Sigur í fyrsta leik vetrarins

Skagamenn hófu keppni í 2. deild karla í körfuknattleik á sigri gegn B-liði Vals, 99-93, þegar liðin mættust á Akranesi á sunnudag. Áhorfendur fengu jafnan og skemmtilegan leik, þar sem aldrei munaði miklu á liðunum á stigatöflunni. Gestirnir leiddu með tveimur stigum í hálfleik en Skagamenn mættu einbeittir til leiks eftir hléið. Á endanum fór…Lesa meira