Fréttir

true

Öryggisnúmer á sumarhúsum geta bjargað lífum

Eigendum sumarhúsa hér á landi býðst að sækja um svokölluð öryggisnúmer sem fest eru með plötum á útvegg húsa og sömuleiðis innandyra. Þetta er þó valkvæð þjónusta sem hver og einn ákveður hvort hann kaupir. Sótt er um öryggisnúmer til Landssambands sumarhúsaeigenda sem úthlutar þeim. Við úthlutun neyðarnúmers er húsið samhliða skráð í gagnagrunn viðbragðsaðila…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit fær jafnlaunavottun

Hvalfjarðarsveit hefur hlotið heimild Jafnréttisstofu til nota jafnlaunamerkið. Er það staðfesting á því að innan stofnana sveitarfélagsins séu laun starfsfólks sem vinnur sömu störf eða jafn verðmæt störf sambærileg alveg óháð kyni. „Mikilvægum áfanga er náð og þakkar sveitarstjórn öllum þeim sem að vinnunni komu og óskar starfsfólki sveitarfélagsins til hamingju með niðurstöðuna,“ segir í…Lesa meira

true

Veik von Skallagríms orðin að engu

Ljóst er að Skallagrímur kemst ekki í úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu, eftir tap á útivelli gegn KFB í gær, 5-3. Fyrir leikinn áttu Borgnesingar veika von um að komast í úrslitakeppnina, en hefðu þurft að sigra síðustu tvo leiki tímabilsins, helst með talsverðum mun, auk þess að treysta á hagstæð úrslit annarra leikja.…Lesa meira

true

Tökur á Vitjunum hefjast brátt í Grundarfirði

Tökur á þáttaröðinni Vitjanir, sem fyrirtækið Glassriver framleiðir, eru að hefjast og munu að miklu leyti fara fram í Grundarfirði á næstu mánuðum. Íbúar í Grundarfirði mega því búast við að sjá kvikmyndagerðarfólk að störfum enda er þetta nokkuð umfangsmikil þáttagerð. Vitjanir, eða Fractures, eru dramaþættir í leikstjórn Evu Sigurðardóttur. Gerast þeir í litlu sjávarþorpi…Lesa meira

true

Sigraðir í höllinni

Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Haukum, 1-2, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Akraneshöllinni og öll mörk leiksins litu dagsins ljós í fyrri hálfleik. Gestirnir úr Hafnarfirði voru öflugri í upphafi, pressuðu á Káraliðið og stjórnuðu ferðinni í leiknum. Þeir komust yfir á 24. mínútu þegar…Lesa meira

true

Kynningarátak um að velja íslenskt

„Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í stöðugri hringrás.“ Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi,…Lesa meira

true

Norskri skútu komið til bjargar í gærkvöldi

Á níunda tímanum í gærkvöldi fékk sjóbjörgunarhópur Björgunarfélags Akraness útkallsboð. Fara þurfti til aðstoðar áhöfn á norskri skútu sem var í hremmingum á Faxaflóa, um sex sjómílur norðvestur af Akranesi. Það tók einungis tíu mínútur að fullmanna áhöfn á Jóni Gunnlaugssyni, björgunarbáti félagsins, og halda til móts við skútuna. Skútan hafði lent í mótbyr og…Lesa meira

true

Land lögmenn opna lögmannsstofu í Borgarnesi

Lögmennirnir Sverrir Sigurjónsson og Sigurður Jónsson hafa tekið yfir rekstur lögmannsstofu Inga Tryggvasonar, LIT, í Borgarnesi. Munu þeir reka þar lögmannsstofu undir merkinu Land lögmenn. Tóku þeir yfir húsnæði Inga að Borgarbraut 61 í Borgarnesi og mun því skrifstofa þeirra verða á sama stað og skrifstofa Inga var áður. Jafnframt munu þeir sjá um rekstur…Lesa meira

true

Meistaramót FEBBN í pútti 2020

Pútthópur Borgarbyggðar æfði af kappi síðastliðinn vetur og sumar og var vel undirbúinn fyrir keppnistímabilið. En tvö stór mót, Landsmót UMFÍ 50+ sem fara átti fram í Borgarnesi og Íslandsmót 60+ sem vera átti á Ísafirði, voru bæði felld niðir. Því var ákveðið að efna til meistaramóts í fyrsta skipti nú í lok sumars. Leiknar…Lesa meira

true

Netráðstefna um nýtingu félagsheimila á Vesturlandi

Fimmtudaginn 17. september nk. gangast Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir ráðstefnu á netinu þar sem fjallað verður um „aukna nýtingu félagsheimila og menningarhúsa á Vesturlandi fyrir blómlega menningu“. Viðburðinum verður streymt á Facebook og Youtube síðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Á heimasíðu samtakanna verður jafnframt að finna úttekt á öllum félagsheimilum í eigu sveitarfélaga í…Lesa meira