Fréttir

true

Kófið og menntakerfið: Opið málþing 10. september

Opið málþing um nám og kennslu á tímum samkomubanns vegna COVID-19 fer fram á morgun, fimmtudaginn fimmtudag, 10. september milli kl. 15-16.30. Að málþinginu standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið er hið fyrsta í röð viðburða sem haldnir verða haustið 2020 til þess að ræða áskoranir og…Lesa meira

true

Samið um hönnun íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum

Síðastliðinn fimmtudag var skrifað undir samning milli Akraneskaupstaðar og Ask arkitekta um hönnun nýrra íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum. Það voru Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi og Páll Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Ask arktitekta, sem undirrituðu samninginn. Í honum felst hönnun nýrra íþróttamannvirkja að Jaðarsbökkum, sem byggð er á vinnu starfshóps sem hefur unnið að málinu frá 2016.…Lesa meira

true

Skella Hólabúð og 380 Restaurant í lás

Hólabúð og 380 Restaurant á Reykhólum verður lokað varanlega um næstu mánaðamót. Ekki verður mikið um vörupantanir fram að þeim tíma og má því gera ráð fyrir að vöruúrvalið minnki hægt og rólega fram að lokun. „Við munum þó reyna að passa uppá að eiga alltaf þessar helstu nauðsynjavörur þar til við lokum,“ segir Ása…Lesa meira

true

Reykjagarður innkallar kjúkling vegna gruns um salmonellu

Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingum frá Reykjagarði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið er að innkalla kjúklinginn. Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi rekjanleikanúmera: 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Holta-, Kjörfugl og Krónu-kjúklingur) 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Heill fugl, bringur, lundir, bitar) Dreifing: Iceland verslanir, Hagkaupsverslanir, Krónan, KR Vík, Kjarval, Nettó, Costco, Extra24, Heimkaup, Kf. Skagfirðinga, Bjarnabúð, Kjörbúðin,…Lesa meira

true

Tólf ljóðabækur með nafni sem síðar kemur í ljós

Bókaútgáfan Hólar hefur ákveðið að ráðast í útgáfu á tólf ljóðabókum eftir Bjarna Stefán Konráðsson frá Frostastöðum í Skagafirði. Bjarni segir í samtali við Skessuhorn að bækurnar komi út í tvennu lagi, sex í hvort sinn. „Sex fyrri bækurnar eru komnar út en hinar koma út á næsta ári. Þær heita allar einu orði sem…Lesa meira

true

Ólympíuhlaup ÍSÍ hlaupið í Grundarfirði

Ólympíuhlaup ÍSÍ fór fram í morgun í ágætis veðri í Grundarfirði. Starfsmenn ÍSÍ komu færandi hendi með gjafir fyrir skólann. Þar mátti finna ýmislegt dót sem hvetur til hreyfingar. Lukkudýrið Blossi sá um upphitun fyrir krakkana áður en fulltrúar ÍSÍ ræstu nemendur út. Boðið var upp á fimm og tíu kílómetra hlaupaleiðir fyrir iðkendur í…Lesa meira

true

Tónleikar í Akranesvita á síðum bresks rokktímarits

„Á þessu vírus-slegna sumri frestaðra tónleika og aflýstra hátíða eru fáir staðir í heiminum þar sem enn er flutt lifandi tónlist. En einn þeirra er Akranesviti á vesturströnd Íslands.“ Þannig hefst góður dómur breska rokktímaritsins Classic Rock Magazine um tónleika enska tónlistarmannsins Will Carruthers í Akranesvita í júlí síðastliðnum. Carruthers spilaði þar í tengslum við…Lesa meira

true

Árlegri sviðaveislu í Dölum hefur verið aflýst

Hinni árlegu og rómuðu sviðaveislu Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu hefur verið aflýst, en hún hefur verið fastur liður í dagskrá Haustfagnaðar FSD sem haldinn er seinni hluta októbermánaðar ár hvert. Grillveisla haustfagnaðirins hefur einnig verið blásin af, sem og dansleikurinn. Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnar FSD, sem birt var á Facebook-síðu félagsins fyrir helgi.…Lesa meira

true

Opnuðu sjoppu í þvottahúsi

Hjá Blossa ehf. í Grundarfirði er rekið þvottahús og byggingavöruverslun sem býður upp á ótrúlega breitt vöruúrval. Nú í sumar bættist enn við flóruna þegar eigendurnir opnuðu litla matvöruverslun í anda kaupmannsins á horninu. Þar er hægt að fá ýmsar nauðsynjavörur eins og brauð, ost og mjólk, svo eitthvað sé nefnt. Systkinin Helga Sjöfn og…Lesa meira

true

Dalamönnum gert kleift að panta vörur úr netverslun Nettó

Samkaupskeðjan hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum í Búðardal í Dölum, Reykjahlíð í Mývatnssveit, Hólmavík á Ströndum og Flúðum í Hrunamannahreppi að fá vörur sendar úr netverslun Nettó í samráði við Krambúðir á þessum stöðum. „Þetta er gert í tilraunaskyni til að mæta óskum viðskiptavina verslananna,“ segir í tilkynningu, en eins og kunnugt er hafa…Lesa meira