Fréttir

true

Þriðji sjúkrabíllinn afhentur í Borgarnes

Eins og Skessuhorn hefur greint frá á liðnum vikum hafa nýir sjúkrabílar verið að bætast í flota Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Eru þar á ferð bílar úr 25 bíla útboði Sjúkratrygginga Íslands og RKÍ. Áður höfðu fyrr í sumar verið afhentir bílar á Akranesi og Ólafsvík en þriðji bíllinn er nú mættur í Borgarnes. Á meðfylgjandi mynd…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á tveimur stöðum eftir hádegi

Rafmagnslaust verður í Flókadal í dag, 7. september, milli kl. 13:00 og 16:00, vegna vinnu við háspennukerfið frá Geirshlíð að Varmalæk. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysisins, vegna prófunar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Rarik. Einnig verður rafmagnslaust á Saurbæjarlínu; Fellsströnd, Skarðsströnd og Saurbæ, vegna vinnu við…Lesa meira

true

Fengu mikinn skell á útivelli

Snæfellingar fengu mikinn skell þegar þeir mættu liði Álafoss í 4. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Mosfellsbæ og áður en yfir lauk þurftu Snæfellingar að sækja knöttinn tíu sinnum í eigið net, en komu honum einu sinni í mark heimamanna. Leikurinn fór af stað með miklum látum. Ægir Örn Snorrason skoraði…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Kára

Kári vann mikilvægan sigur á ÍR, 1-2, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Breiðholtinu í Reykjavík. Eftir markalausan fyrri hálfleik dró til tíðinda á 55. mínútu, þegar Má Viðarssyni var vikið af velli með rautt spjald. ÍR-ingar máttu því sætta sig við að leika manni færri það…Lesa meira

true

Veik von um sæti í úrslitakeppninni

Skallagrímur mátti sætta sig við tap þegar liðið mætti Ísbirninum í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Kórnum í Kópavogi og það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 3-0. Eftir markalausan fyrri hálfleik tókst heimamönnum að brjóta ísinn á 59. mínútu leiksins, með marki frá Orats Reta Garcia. Milos…Lesa meira

true

Góður heimasigur Víkings

Víkingur Ó. sigraði Magna, 3-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á blautum Ólafsvíkurvelli í nokkuð stífum vindi og einkenndist leikurinn af mikilli baráttu. Heimamenn voru þó sterkari allan leikinn og þeir komust yfir strax á 6. mínútu. Hornspyrna var tekin stutt og boltinn barst á Gonzalo Zamorano…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá heilbrigðisráðherra vegna krabbameinsskimana

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að konur treysti áfram á þjónustu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og sinni boðum um reglubundnar skimanir. Hún segir að allt verði gert til að rannsaka til hlítar hvað olli afdrifaríkum mistökum við leghálsskimanir hjá Leitarstöð KÍ og fyrirbyggja að slíkt geti endurtekið sig. Breytingar verða á fyrirkomulagi krabbameinsskimana um næstu áramót,…Lesa meira

true

Ríkissjóður skilar neikvæðri afkomu um 115 milljarða á sex mánuðum

Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrri helming ársins þessa árs liggur fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að rekstrarafkoman er neikvæð um 115 milljarða króna sem er í samræmi við væntingar að teknu tilliti til áhrifa COVID-19, eins og segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Samkvæmt upphaflegri áætlun fjárlaga var gert ráð fyrir að afkoma tímabilsins yrði neikvæð um…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í bikarnum

Úrvalsdeildarlið Breiðabliks var of stór biti fyrir Skagakonur, en liðin mættust í átta liða úrslitum Mjólkurbikarskvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Breiðablik var fyrir leikinn í 2. sæti Pepsi Max deildarinnar en Skagakonur leika sem kunnugt er í deildinni fyrir neðan. Það var því ljóst að Skagakonur ættu erfiðan leik fyrir höndum á Akranesi í gær.…Lesa meira

true

Fyrstu réttir á morgun

Fyrstu réttir á Vesturlandi verða núna um helgina. Réttað verður í Nesmelsrétt í Hvítársíðu á morgun, laugardaginn 5. september, og daginn eftir verður réttað í Kaldárbakkarétt í gamla Kolbeinsstaðahreppi. Yfirlit yfir fjárréttir á Vesturlandi fer hér á eftir, en rétt er að geta þess að villur gætu hafa slæðst inn í listann, sem Bændablaðið tók…Lesa meira