Fréttir

true

Nýr sjúkrabíll kominn til Ólafsvíkur

Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur afhent nýja sjúkrabifreið til notkunar í Snæfellsbæ. Það var Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE, sem afhenti bílinn í dag. Líkt og aðrir nýir sjúkrabílar úr 25 bíla útboði á vegum Sjúkrabílasjóðs RKÍ og Sjúkratrygginga á landinu, er bíllinn af Bens gerð. Þetta er annar bíllinn sem afhentur er úr þessu útboði…Lesa meira

true

Undanþága fyrir réttarstörf

Á föstudag veitti heilbrigðisráðherra almenna undanþágu frá fjöldatakmörkum fyrir réttarstörf, gegn því að farið verði eftir sérstökum tilmælum sóttvarnalæknis. Til að geta fengið undanþágu þarf þannig að halda lista yfir alla sem koma í hverja rétt með upplýsingum sem má nota til að hafa samband við viðkomandi gerist þess þörf. Upplýsingar um sóttvarnaráðstafanir og tveggja…Lesa meira

true

Ákvörðun tekin um að klukkunni verði ekki breytt

Klukkan á Íslandi verður áfram óbreytt. Það er niðurstaða ríkisstjórnarinnar eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund. Segir í ákvörðun þeirri að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í…Lesa meira

true

Minnir sveitarfélög á hlutverk ungmennaráða

Embætti umboðsmanns barna hefur sent öllum sveitarfélögum bréf þar sem minnt er á hlutverk og tilgang ungmennaráða og sérstaklega mikilvægi þess að í ungmennaráðum sitji fulltrúar yngri en 18 ára. Samkvæmt æskulýðslögum skulu sveitarstjórnir hlutast til um að stofnuð séu ungmennaráð, en markmiðið er að gefa ungmennum kost á því að vera virkir þátttakendur í…Lesa meira

true

Árbók Akurnesinga er komin út

Nítjánda bindi Árbókar Akurnesinga er komið út. Meðal efnis er grein Illuga Jökulssonar um fyrsta málið sem rekið var fyrir Hæstarétti Íslands, en þar var deilt um viðardrumb sem rak í Bjargsvör. Í fótspor foringjans nefnist grein eftir Hjördísi Hjartardóttur og Ari Jóhannesson skrifar um Kristján Fjeldsted sem gerðist lögreglumaður í Kanada. Sögugangan „Hvaða kellingar?“…Lesa meira

true

Séra Anna er nýr prestur í Stafholti

Umsóknarfrestur um starf sóknarprests í Stafholtsprestakalli í Borgarfirði rann út í byrjun júní. Auglýst var eftir sóknarpresti til þjónustu við prestakallið og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Sjö sóttu um starfið. Kjörnefnd hefur nú kosið sr. Önnu Eiríksdóttur til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hennar.…Lesa meira

true

Sluppu vel frá bílveltu

Bílvelta varð aðfararnótt laugardags skammt frá Dritvík á Snæfellsnesi. Viðbragðsaðilar voru kallaðir til sem og þyrla Landhelgisgæslunnar sem flutti tvo slasaða úr bílnum á Landspítalann í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Skessuhorns reyndust báðir lítið slasaðir og hafa verið útskrifaðir af spítala.Lesa meira

true

Úthlutun aflaheimilda fyrir væntanlegt kvótaár

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 sem hefst á morgun. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og undanfarin ár. Tekið skal fram að  enn eru fáein skip ófrágengin og getur því úthlutun til skipa enn breyst lítillega. Að þessu sinni er úthlutað 353…Lesa meira

true

Svikapóstar í nafni Póstsins

Íslandspóstur varar viðskiptavini sína við svikapóstum sem undanfarið hafa verið sendir út þar sem reynt er að komast yfir greiðslukortaupplýsingar fólks. Í tilkynningu á vef Íslandspósts kemur fram að póstarnir séu ekki frá fyrirtækinu. Þau sem eigi von á sendingu geti greitt fyrir hana á öruggri síðu á vef fyrirtækisins. „Pósturinn varar eindregið við því…Lesa meira

true

Starfsemi Ljóssins gerð aðgengilegri í gegnum fjarfundabúnað

Síðastliðinn föstudag var stigið skref í að bæta endurhæfingarferli krabbameinsgreindra á landsbyggðinni. Skrifað var undir samning samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis við Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, um fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu krabbameinsgreinda. Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa hingað til í litlum mæli haft kost á að nýta sér…Lesa meira