
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill fjölga kennslustundum í íslensku og raungreinum í grunnskólum landsins frá og með haustinu 2021. Áformin hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðsgáttinni kemur fram að tilefni breytinganna sé viðvarandi slakur árangur nemenda í lesskilningi og náttúrufræði, samanborið við önnur lönd. Í því samhengi er vísað til PISA-kannanarinnar svokölluðu,…Lesa meira








