Fréttir

true

Byrjað að steypa sökkla undir þjóðgarðsmiðstöð

Framkvæmdir við uppbyggingu nýrrar miðstöðvar fyrir Þjóðagarðinn Snæfellsjökli hófust í byrjun ágúst. Þjónustumiðstöðin verður reist á Hellissandi og mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Þegar verkið var boðið út fyrr á árinu bárust sex tilboð og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 475 milljónir króna. Húsheild ehf. átti lægsta tilboð, eða 420,7 milljónir. Samanstendur nýbyggingin af tveimur megin…Lesa meira

true

Reglur um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

Heilbrigðisráðherra hefur, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, birt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi og hefur hún þegar tekið gildi. „Markmiðið er að raska sem minnst skólastarfi vegna COVID-19 þrátt fyrir að gætt sé að sóttvarnasjónarmiðum. Talið var nauðsynlegt að fjalla um takmarkanir á skólahaldi í sérstakri auglýsingu en…Lesa meira

true

Annar hver íbúi skrifaði undir

Alls lögðu 320 Dalamenn nafn sitt við undirskriftalista þar sem breytingum á matvöruversluninni í Búðardal úr Kjörbúð í Krambúð er mótmælt. Sömuleiðis var mótmælt þeirri verðhækkun sem breytingunum hafa fylgt og þess krafist að Kjörbúð verði opnuð í sveitarfélaginu á ný. Undirskriftalistanum ásamt áskoruninni var komið til Samkaupa í gær, mánudaginn 24. ágúst. Sem fyrr…Lesa meira

true

Ráðherrar nú lausir úr prísundinni

Eins og fram kom í fréttum í liðinni viku, lenti mestöll ríkisstjórn Íslands í tvöfaldri skimun vegna þess að hætta var talin á að þeir hefðu verið útsettir fyrir kórónaveirusmit í kjölfar þess að stjórnin snæddi saman kvöldverð á Hótel Rangá á Suðurlandi síðastliðið þriðjudagskvöld. Niðurstöður úr síðari skimun ráðherra í gær reyndust hinsvegar neikvæðar…Lesa meira

true

Mega nú ávísa getnaðarvörnum

Heilbrigðisráðherra hefur skrifað undir reglugerð um heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. „Markmiðið er að auka aðgengi að getnaðarvörnum og stuðla með því að auknu kynheilbrigði fólks. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um skilyrði fyrir heimild til að ávísa þessum lyfjum og um námskröfur,“ segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Sækja þarf…Lesa meira

true

Bjarki Steinn seldur frá ÍA

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason hefur verið seldur til ítalska liðsins Venezia í Feneyjum. Hann samdi við ítalska liðið til þriggja ára. Fótbolti.net greinir frá. Bjarki er tvítugur kantmaður, uppalinn hjá Aftureldingu en gekk í raðir ÍA árið 2018 og hefur leikið með liði Skagamanna í Pepsi Max deildinni undanfarin þrjú ár. Hann hefur skorað fjögur…Lesa meira

true

Garðyrkjunemum við LbhÍ fjölgar mikið

Vel á annað hundrað umsóknir bárust á garðyrkjubrautir Landbúnaðarháskóla Íslands í haust. Er það ríflega tvöföldun frá fyrri árum, að því er fram kemur á vef skólans. Garðyrkjubrautir skólans eru sex talsins; ylrækt, garð- og skógarplöntur, lífræn ræktun matjurta, skrúðgarðyrkja, blómaskreytingar og loks skógur og náttúra. Lífræn ræktun matjurta er fjölmennasta brautin í ár, með…Lesa meira

true

Sigraðir á Selfossi

Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Selfyssingum, 1-0, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í blíðskaparveðri á Selfossi í gær. Heimamenn voru sterkari í leiknum og fengu sinn skerf af marktækifærum. Litlu munaði að þeir kæmust yfir strax á 5. mínútu en Káramenn björguðu á línu. Skagaliðið átti síðan góða…Lesa meira

true

Tólf marka tap

Snæfellingar fengu hvorki rönd við reist þegar þeir mættu Kormáki/Hvöt í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var á Blönduósi og heimamenn skoruðu hvorki fleiri né færri en 13 mörk gegn aðeins einu marki Hólmara. Viktor Ingi Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn og þeir Ingvi Rafn Ingvason og Ágúst Friðjónsson skoruðu báðir…Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli á Ísafirði

Víkingur Ó. gerði jafntefli við Vestra, 3-3, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu. Leikið var á Ísafirði í gær. Heimamenn voru öflugri í blábyrjun leiksins, án þess þó að skapa sér nein dauðafæri. Eftir um tíu mínútna leik áttu Ólafsvíkingar hættulega sókn og skalla rétt framhjá. Upp úr því voru þeir sterkari…Lesa meira