Fréttir

true

Líkamsrækt í góða veðrinu

Það var bjart yfir hópi eldri borgara á Akranesi sem fór í morgungöngu í morgun. Sól skein í heiði og óhætt að segja að sál hafi einnig verið í sinni þátttakenda sem hér teygja fyrir morgungönguna. Hópurinn hittist reglulega á mánudögum og miðvikudögum og finnur sér skemmtilegar gönguleiðir innan sem utan bæjarins.Lesa meira

true

Penninn oftast með hæsta verðið á námsbókum

Töluverður munur var á hæsta og lægsta verði í verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ á nýjum og notuðum námsbókum. Í flestum tilfellum, eða í 18 tilfellum af 35, var 700-1.500 kr. munur á hæsta og lægsta verði á nýjum námsbókum en í þremur tilfellum var enn meiri munur eða 2.000-3.000 krónur. Penninn- Eymundsson var oftast með hæsta…Lesa meira

true

Emir í ótímabundið leyfi

Stjórn knattspyrndeildar Víkings Ólafsvík hefur í samráði við Emir Dokara, leikmann félagsins, og Guðjón Þórðarson þjálfara ákveðið að Emir Dokara fari í ótímabundið leyfi frá félaginu. „Emir er áfram leikmaður félagsins og fréttir sem benda til annars eru ekki réttar. Félagið mun ekki tjá sig nánar um málið,“ segir í tilkynningu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns kom…Lesa meira

true

Skógræktarfólk heldur aðalfund þrátt fyrir Covid

Þrátt fyrir Covid 19 þá hefur stjórn Félags skógarbænda á Vesturlandi ákveðið að halda aðalfund félagsins eins og áður hafði verið ráðgert. Í samráði við Hótel Hamar í Borgarnesi er gert ráð fyrir sóttvörnum og að fundarmenn geti haldið tveggja metra regluna bæði á fundinum og við borðhald. „Mikilvægt er að fundarmenn virði allar sóttvarnir…Lesa meira

true

Strekktar línur fengu sex laxa í Haukadalsá

„Við vorum að koma úr Haukadalsá í Dölum og fengum sex laxa,“ sagði Kristín Edwald, sem er í veiðihópnum Strekktum línum sem telur tíu konur. Hópurinn fer á hverju ári til veiða í Haukadalsá og víðar. Þær byrjuðu veiðisumarið í Minnivallarlæk og þar gekk ágætlega. „Þetta var fín ferð og félagsskapurinn góður,“ sagði Kristín um…Lesa meira

true

Byggingarfulltrúi samþykkti niðurrif legsteinahúss

Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúans í Borgarbyggð síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir umsókn Páls Guðmundssonar um niðurrif nýlegs legsteinahúss í Bæjargili í Húsafelli, landnr.  221570. Erindið var samþykkt. Byggingarfulltrúa var falið að gefa út byggingar – niðurrifsleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.3 og 2.3.1. í byggingarreglugerð 112/2012. Gerð var sú athugasemd að niðurrif skuli gera í…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst ætlar að samþykkja umsóknir sem berast seint

Í síðustu viku var það kynnt að ríkisstjórnin hefur ákveðið að heimila þeim sem hafa verið lengi atvinnulausir að hefja nám í framhalds- eða háskólum meðan þeir eru á atvinnuleysisbótum. Þeim sem eru án vinnu verður heimilt að fara í nám án þess að missa bætur samkvæmt breytingum sem verið er að vinna að. Tillögur…Lesa meira

true

Harma að ungmenni gátu keypt orkudrykki

Vegna fréttar hér á vef Skessuhorns í síðustu viku þess efnis að ungmenni gátu keypt orkudrykki í sjálfsafgreiðslu í verslun Krambúðarinnar í Búðardal, barst eftirfarandi tilkynning frá Krambúðinni, þar sem atvikið er harmað og lofað bót og betrun. Orðrétt segir: „Krambúðin þakkar ykkur fyrir að vekja athygli á sölu orkudrykkja sem innihalda koffín til ungmenna…Lesa meira

true

Fræðslunefnd fjallaði um viðbrögð vegna Covid

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var fjallað um viðbrögð skóla í sveitarfélaginu vegna Covid-19. Í fundargerð segir: „Gripið hefur verið til ráðstafana í stofnunum Borgarbyggðar sem heyra undir nefndina í samræmi við þær leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út af Almannavörnum. Leikskólar hafa endurskipulagt aðlögun nýrra barna en annars gengur leikskólastarf sinn vanagang. Grunnskólarnir…Lesa meira

true

Ráðherrar reyndust neikvæðir við fyrri skimun

Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveirunnar reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Félags- og barnamála- og heilbrigðisráðherra þurftu ekki að fara í skimun líkt og áður hefur komið fram. Ráðherrarnir fara í síðari skimun á morgun, mánudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.Lesa meira