Fréttir

true

Aflýsa Björgun 20 sem vera átti í október

„Sökum þeirra takmarkana á samkomuhaldi sem í gildi eru vegna Covid-19, ásamt stöðu félagsins sem hluti af almannavarnaviðbragði landsins, hefur stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar samþykkt að fella niður ráðstefnuna Björgun sem halda átti í október á þessu ári,“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Ákvörðunin er ekki léttvæg enda skipar ráðstefnan stóran sess sem faglegur og félagslegur…Lesa meira

true

Skessuhorn lesið á toppi Hraundranga

Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir og dyggur lesandi Skessuhorns fékk þá sniðugu hugmynd í liðinni viku að taka nýjasta tölublað Skessuhorns með sér í fjallaleiðangur. Þetta er að vísu ekki einsdæmi því Gunnar fór í gönguferð á fjallið Baulu sumarið 2016 með Skessuhorn í bakpokanum og las fréttir úr héraðinu þegar á toppinn var komið.  Hann,…Lesa meira

true

Tveir Borgnesingar hlupu 100 km í Bretlandi

Borgnesingarnir Hjalti Rósinkrans Benediktsson og Jón Arnar Sigurþórsson voru meðal keppanda í 100 km hlaupi í Bretlandi síðastliðinn laugardag. Þrátt fyrir óþarflega mikla rigningu gekk hlaupið eins og best verður á kosið og þeir félagar komu í mark vel framan við miðjan hóp á tímanum 12:40:07 klst. Hlaupið sem um ræðir nefnist SVP100 og fylgir…Lesa meira

true

Vélsmiðja Grundarfjarðar stækkuð

Forsvarsmenn Vélsmiðju Grundarfjarðar standa í ströngu þessa dagana en starfsmenn eru nú á fullu við að stækka húsnæði fyrirtækisins. Í vélsmiðjunni er einnig rekið bifreiðaverkstæði og nú á að auka þjónustuna þar til muna. Stefnt er að því að starfsemin verði komin á fullt í október næstkomandi eða áður en vetrardekkjavertíðin fer í gang. Eitthvað…Lesa meira

true

Tæp sjö prósent atvinnulaus á öðrum ársfjórðungi

Atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16 til 74 ára var 79,6% af mannfjölda á öðrum ársfjórðungi ársins, eða um 208.100 manns að jafnaði. Að meðaltali voru 14.300 atvinnulausir, eða um 6,9%, að því er fram kemur í samantekt Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 2.600 störf laus á vinnumarkaði, eða um 1,3% starfa. Til samanburðar…Lesa meira

true

Tíu innanlandssmit í gær

Tíu ný innalandssmit Covid-19 greindust í gær. Er það mesti fjöldi smita sem greinst hefur innanlands frá 5. ágúst, þegar 16 smit greindust á einum degi. Helmingur þeirra sem greindist í gær var í sótthkví, hinn ekki. Flest smitin greindust á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Ekkert smit greindist á landamærunum, en fjórir bíða niðurstöðu mótefnamælingar. Alls…Lesa meira

true

Nú verður fylgst náið með heilsu ráðherra

Ákveðið hefur verið að ráðherrar ríkisstjórnar Íslands fari í tvöfalda skimun og viðhafi smitgát á milli eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá. Ríkisstjórnin snæddi kvöldverð á hótelinu síðastliðinn þriðjudag í lok heimsóknar þeirra á Suðurland. Fyrri skimun fer fram síðar í dag og sú síðari nk. mánudag.…Lesa meira

true

Ríkið sparaði 2,7 milljarða í ferðakostnaði opinberra starfsmanna

Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins um 2,7 milljarða króna og fór úr 6,7 milljörðum í tæpa fjóra milljarða. Lækkunin nemur 41% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru og ferðatakmarkana hennti tengdri. Með ferðakostnaði er átt við ferðalög og uppihald á ferðalögum á Íslandi og erlendis. Tölurnar ná til A-hluta stofnana ríkisins…Lesa meira

true

Lífleg fasteignaviðskipti í júlí

Á Vesturlandi var 62 samningum um fasteignir þinglýst í júlímánuði. Er það umtalsvert meiri fjöldi en mánuðina á undan. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 21 samningur um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.883 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,4 milljónir króna. Af þessum…Lesa meira