
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað dr. Hrönn Jörundsdóttur í embætti forstjóra Matvælastofnunar til næstu fimm ára. Tekur hún við starfinu 1. ágúst. Hrönn er með BS gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og lauk MS-prófi í umhverfisefnafræði árið 2002 frá Stokkhólmsháskóla. Árið 2009 lauk hún einnig doktorsgráðu í umhverfisefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og…Lesa meira








