Fréttir

true

Kviknaði í þakklæðningu á sjúkrahúsinu

Allt tiltækt slökkvilið í Stykkishólmi var kallað út síðdegis í gær þegar brunaboði fór í gang á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Ástæða þess var að eldur kom upp í klæðningu sem var verið að leggja á þak hússins. Starfsfólk á sjúkrahúsinu brást skjótt við og slökkti eldinn áður en slökkviliðsmenn mættu. Skemmdir urðu litlar en reykræsta…Lesa meira

true

Heim í Búðardal um komandi helgi

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fer fram um helgina. Vegna fjöldatakmarkana í samfélaginu er dagskráin með aðeins breyttu sniði í ár en engu að síður verða fjölbreyttir viðburðir fyrir alla aldurshópa. Hátíðin hefst með hefðbundnum hætti á kjötsúpurölti á föstudagskvöldinu. Þá ætla þrjú heimili að opna fyrir gestum og á tveimur þeirra verður boðið upp á…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn og Kristján Örn mikilvægust

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Skallagríms fór fram á B59 Hotel í Borgarnesi á föstudaginn. Eins og flestum er kunnugt var mótið blásið af áður en úrslitakeppni hófst og engir Íslandsmeistarar voru því krýndir í ár vegna áhrifa Covid-19. Skallagrímskonur náðu þó að hampa eina titlinum þetta tímabilið en þær urðu Bikarmeistarar í fyrsta skipti í sögu félagsins…Lesa meira

true

Bókamarkaðurinn á Snæfellsnesi opnaður

Bókamarkaðurinn á Snæfellsnesi var opnaður í Grundarfirði á sunnudaginn en það eru meðlimir í leshópnum Köttur úti í mýri sem standa að markaðnum og er þetta annað sumarið í röð sem hann er settur upp. Þar er að finna ýmsar bækur, bæði nýjar og gamlar. Markaðurinn er staðsettur við Borgarbraut 2 og verður hann opinn…Lesa meira

true

33 lagabálkar felldir brott

Alþingi hefur samþykkt tvö frumvörp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um einföldun regluverks. Með lögunum voru alls 33 lagabálkar felldir brott í heild sinni, fimm stjórnsýslunefndir lagðar niður og stjórnsýsla og regluverk á málefnasviðum ráðherra einfölduð töluvert. „Frumvörpin eru afrakstur víðtæks samráðs sem haft var við helstu hagsmunaaðila og stofnanir ráðuneytisins, s.s. Matvælastofnun, Fiskistofu,…Lesa meira

true

Ákvað að verða hárgreiðslukona fimm ára gömul

Ingileif Aðalheiður Gunnarsdóttir hárgreiðslumeistari í Borgarnesi fagnar 40 ára starfsafmæli á árinu. Ingileif rekur Hárgreiðslustofuna Heiðu á Kveldúlfsgötu. Hún var staðráðin í því sem ung stelpa að verða hárgreiðslukona þegar hún yrði stór. „Ég var nú bara fimm ára þegar ég ákvað þetta,“ rifjar Ingileif upp við blaðamann Skessuhorns á stofunni sinni í Borgarnesi. „Systir…Lesa meira

true

Rassskelltir á útivelli

Snæfell var vægast sagt rassskellt þegar liðið heimsótti KFR á Hvolsvelli í þriðju umferð B riðils 4. deildar knattspyrnu karla á þriðjudaginn í liðinni viku. Hólmarar áttu að vísu fyrsta mark leiksins. Dominik Wojciechowski skilaði knettinum í mark heimamanna á 9. mínútu og kom Snæfelli yfir í eina skiptið í leiknum. Ekki leið á löngu…Lesa meira

true

Keppnin Álmaðurinn verður á morgun

Keppt verður í þríþrautarkeppninni Álmanninum á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 2. júlí. Um er að ræða þríþraut þar sem er synt, hlaupið og hjólað á Langasandi og Akrafjalli. Skipulag Álmannsins er í höndum líkamskræktarstöðvarinnar Ægis með stuðningi frá Björgunarfélagi Akraness og ÍA. Keppni hefst kl 18:30 á bílastæðinu við Akraneshöllina og lýkur við Langasand. Fyrst…Lesa meira

true

Reynt að svíkja út fé í nafni Facebook

Að jafnaði eru margir sem reyna ólíkar aðferðir við að svíkja út fé í gegnum netið. Í dag barst ritstjórn Skessuhorns eftirfarandi tölvupóstur. Hann er sendur út í nafni Facebook Inc, en nokkuð augljóslega er hér um svikastarfsemi að ræða. Ástæða er til að vara við svona löguðu, en pósturinn í heild sinni er eftirfarandi:…Lesa meira

true

„Það er fullkomlega eðlilegt að ekki séu allir sammála um mál af þessari stærðargráðu“

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að auglýsa breytingar á aðalskipulagi á tveimur jörðum í Laxárdal; Hróðnýjarstöðum og Sólheimum. Breytingin felst í því að jörðunum yrði breytt úr landbúnaðarsvæðum yfir í iðnaðarsvæði svo hægt sé að reisa þar vindorkugarða. Þá eru Dalamenn einnig farnir að huga að sameiningu sveitarfélaga og hefur sveitarstjórn hafið óformlegar viðræður við sveitarfélögin…Lesa meira