
Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði för ökumanns í æfingaakstri í Borgarnesi aðfararnótt síðasta sunnudags. Í dagbók lögreglu kemur fram að ökumaðurinn hafi sjáanlega verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann gekkst við notkun kannabisefna og fíkniefnapróf gaf jákvæða svörun við neyslu slíkra efna. Enn fremur framvísaði ökumaðurinn kannabisefnum. Ökumaðurinn var sem fyrr segir í æfingaakstri og…Lesa meira








