Fréttir

true

Hafna því að breyta skipulaginu eftir á

Virkjun var reist í Draghálsá án tilskilinna leyfa Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hafnaði á síðasta fundi sínum tillögum að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefnd hafði áður komist að sömu niðurstöðu. Tillagan sem um ræðir nær til 37 hektara svæðis við bæinn Dragháls og í henni felst að því verði breytt í landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi,…Lesa meira

true

Borgnesingar byrjuðu á sigri

Skallagrímur sigraði Samherja, 4-0, í fyrsta leik liðsins í 4. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í Borgarnesi á þriðjudagskvöld. Borgnesingar mættu ákveðnir til leiks og komust yfir á 21. mínútu leiksins, þegar Magnús Helgi Sigurðsson komst einn í gegn og skoraði eftir góða sendingu frá Viktori Inga Jakobssyni. Magnús bætti síðan öðru marki við…Lesa meira

true

„Núna borða ég til að lifa en lifi ekki til að borða“

Sandra Björk hafði verið í megrun frá því hún var barn og er búin að prófa alla kúrana í bókinni. Það var ekki fyrr en hún fór að vinna í andlegu heilsunni sem hún náði tökum á þeirri líkamlegu. „Minn endapunktur var þegar ég ég slökkti á símanum, fékk lánaðan bíl hjá mömmu og keyrði…Lesa meira

true

Einstakt tækifæri til að verða hjólabær Íslands

„Allar rannsóknir sýna að því betur sem búið er að hjólandi og gangangi vegfarendum, því meiri líkur eru á að fólk nýti sér vistvænan ferðamáta,“ segir Ása Katrín Bjarnadóttir í samtali við Skessuhorn. Hún útskrifaðist með B.S.-gráðu í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 5. júní síðastliðinn. Í lokaverkefni sínu hannaði Ása hjólastofnstíg fyrir…Lesa meira

true

Þrjátíu ára afmælismót SjóSnæ

Það var líf og fjör á bryggjunni í Ólafsvík um síðustu helgi þegar Sjóstangveiðifélag Snæfellsness hélt upp á 30 ára afmæli sitt með sjóstangveiðimóti. Góð stemning og mikið keppnisskap var meðal manna um efstu sætin og allir höfðu gaman af. „Þetta mót tókst frábærlega,“ sagði Sigurjón Helgi Hjelm formaður SjóSnæ í samtali við Skessuhorn. „Allir…Lesa meira

true

Kvennahlaupið var á laugardaginn

Síðastliðinn laugardag fór Kvennahlaup ÍSÍ fram í 31. skipti. Frábært hlaupaveður var víðast hvar á landinu og þátttakendur geisluðu af orku og krafti, segir í tilkynningu frá ÍSÍ. Þokkaleg þátttaka var í hlaupinu og gert ráð fyrir að um 8.000 konur hafi tekið þátt á hátt í 70 stöðum um allt land. Að vanda var…Lesa meira

true

Leggja til lækkun aflamarks í þorski en ýsukvótinn verði aukinn

Hafrannsóknastofnun hefur nú kynnt úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. „Á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark fyrir á fjórða tug stofna, sem miðast við varúðarsjónarmið og hámarksnýtingu til lengri tíma litið,“ segir í frétt frá stofnuninni. Lögð er til 6% lækkun á aflamarki þorsks byggt á aflareglu stjórnvalda,…Lesa meira

true

Norðurálsmótið framundan

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu verður haldið á Akranesi dagana 18.-21. júní næstkomandi. Verður þetta í 35. skiptið sem mótið fer fram. Í ár fer mótið í fyrsta sinn fram í tvennu lagi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ÍA. Á morgun, fimmtudaginn 18. júní, verður eins dags mót fyrir drengi og stúlkur…Lesa meira

true

Straumlaust í Lundarreykjadal eftir hádegið á fimmtudag

Rafmagnslaust verður í Lundarreykjadal í Borgarfirði, ofan Skálpastaða, fimmtudaginn 18. júní frá kl. 13:00 til kl 15:00 vegna vinnu við spennistöð Snartarstöðum. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof. -fréttatilkLesa meira