Fréttir

true

Stórsigur í bikarnum

Skagakonur unnu stórsigur á Hamri, 0-8, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Hveragerði í gær. Þess má geta að leikurinn var fyrsti formlegi keppnisleikurinn sem Hamar leikur í meistaraflokki kvenna. Eins og lokatölurnar benda til voru yfirburðir ÍA algjörir í leiknum. Skagakonur réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og…Lesa meira

true

„Mikilvægt að bera virðingu fyrir sjónum“

Eskey ÓF er 27 brúttótonna króaaaflamarksbátur sem gerður er út frá Akranesi á vorvertíðinni og eitthvað fram á sumarið. EskeyÓF er í eigu Bjarna Bragasonar útgerðarmanns frá Hornafirði en Þráinn Þór Þórarinsson er skipstjóri á bátnum árið um kring. „Pabbi var sjómaður alla sína tíð og ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég…Lesa meira

true

Stofnvísitala þorsks lækkar lítillega

Stofnvísitala þorsks er um 6% lægri en síðastliðin þrjú ár, en hún hefur verið há frá árinu 2011 eftir að hafa verið í lágmarki frá 2002-2006. Rekja má lækkun stofnvísitölunnar til þess að árgangur sjö ára þorsks er lítill og minna fékkst af átta ára fiski, að því er fram kemur í niðurstöðum netaralls Hafró.…Lesa meira

true

Nýr forstjóri Neytendastofu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur sett Þórunni Önnu Árnadóttur í embætti forstjóra Neytendastofu. Setning Þórunnar í embætti gildir frá 1. júlí næstkomandi til áramóta. Þórunn er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá Neytendastofu um 13 ára skeið, þar sem hún gegnir starfi sviðsstjóra neytendaréttarsviðs auk þess að vera staðgengill forstjóra.…Lesa meira

true

„Ég var rúmlega óþolandi þar til ég fékk að fara á sjó“

Stefán Viðar Ólason fæddist á Ísafirði 1992 og bjó í Bolungarvík. Hann fluttist átta ára gamall til Grundarfjarðar þegar útgerð Guðmundar Runólfssonar hf. keypti bátinn Heiðrúnu ÍS, en faðir Stefáns, Óli Fjalar Ólason, var skipstjóri á þeim báti sem síðar fékk nafnið Ingimundur SH. Stefán ólst upp í mikilli nálægð við sjóinn og sjómannslífið, en…Lesa meira

true

Lentu í sjálfheldu í Kjósarskarði

Björgunarsveitir aðstoðuðu unglingsstúlkur og föður þeirra eftir að stúlkurnar höfðu lent í sjálfheldu í klettum í Kjósarskarði í gær. Hjálparbeiðni barst um kl. 14:00. Vel gekk að aðstoða fólkið, að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, og voru allir komnir niður úr klettunum upp úr kl. 16:00.Lesa meira

true

Áfram eftir framlengingu

Káramenn eru komnir áfram í aðra umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir sigur á KV með þremur mörkum gegn engu. Leikið var í Reykjavík í gær. Mörkin létu heldur á sér standa í leiknum, því að loknum venjulegum leiktíma hafði ekkert verið skorað og því varð að grípa til framlengingar. Á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingar…Lesa meira

true

Sluppu frá hörðum árekstri án alvarlegra meiðsla

Betur fór en á horfðist þegar harður þriggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngum á sjötta tímanum í gær. Þrír voru í bílunum og einn var fluttur á sjúkrahús, en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Mikill viðbúnaður var á vettvangi vegna slyssins og voru göngin lokuð í um þrjár klukkustundir á meðan unnið var á…Lesa meira

true

Safna fyrir fjölskylduna á Snartarstöðum

Eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku brann íbúðarhúsið að Snartarstöðum aðfaranótt 2. júní sl. Á bænum búa ung hjón ásamt þremur börnum sínum; fjögurra mánaða, fimm ára og átta ára. Mikil mildi þykir að fjölskyldan hafi sloppið án meiðsla frá brunanum en eignatjón vegna brunans er mikið. Fjölskyldan var tryggð, en…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Snæfellingar féllu úr leik í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu, en liðið tapaði gegn Selfyssingum á útivelli með fimm mörkum gegn engu á föstudagskvöld. Það var Guðmundur Tyrfingsson sem gerði sér lítið fyrir og skorðaði öll fjögur fimm mörk Selfyssinga. Það fyrsta skoraði hann á 21. mínútu leiksins eftir klaufagang í vörn Snæfells. Hann…Lesa meira