Fréttir

true

Baldur fer eina ferð á dag í sumar

Ferjunni Baldri verður siglt eina ferð á dag yfir Breiðafjörðinn í sumar, eftir að Sæferðum var tryggður sérstakur styrkur til siglinganna. Mannlíf greindi fyrst frá. Baldri hefur verið siglt yfir Breiðafjörðinn með ríkisstuðningi á veturna en á markaðsforsendum á sumrin. Töldu Sæferðir, sem reka ferjuna, ekki grundvöll fyrir ferjusiglingum nú í sumar vegna hruns í…Lesa meira

true

Búið að slökkva eld í íbúðarhúsi á Snartarstöðum

Eldur kom upp á efri hæð eldra íbúðarhússins á Snartarstöðum í Lundarreykjadal á fimmta tímanum í nótt. Hjón með þrjú börn komust út úr húsinu og varð ekki meint af. Slökkvilið Borgarbyggðar fékk boð um eldinn klukkan 5:10 í nótt og sendi mannskap frá öllum starfsstöðvum sínum á vettvang. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri segir slökkvistarf…Lesa meira

true

Ærslabelgur kominn á Merkurtún

Nýr ærslabelgur er kominn upp á Merkurtúni á Akranesi. Belgurinn var settur í gang fyrir síðustu helgi og er hann ætlaður fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að hoppa og leika sér. Nú eru tveir Ærslabelgir á Akranesi, einn við Akraneshöll og annar á Merkurtúni. Ærslabelgurinn er vinsælt leiktæki meðal barna og er…Lesa meira

true

Betri rekstrarafkoma en áætlað hafði verið

Á síðasta fundi byggðarráðs Borgarbyggðar var lagt fram yfirlit yfir rekstrarútgjöld fyrir mánuðina janúar til apríl og borið saman við fjárhagsáætlun 2020. Fram kemur í fundargerð að í heildina er rekststrarkostnaður sveitarfélagsins undir áætlun og tekjur hærri, sem nemur 94 milljónum króna. Fyrirfram hafði verið búist við samdrætti í tekjum sem m.a. má rekja til…Lesa meira

true

Nýr formaður SFS

Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma á Siglufirði, hefur tekið við formennsku af Jens Garðari Helgasyni í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Tveir voru í framboði, Ólafur og Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri hjá Brimi. Ólafur fékk 49,99% atkvæða en Ægir Páll 49,05%. Samkvæmt samþykktum samtakanna, má hver stjórnarmaður að hámarki vera sex samfelld ár í stjórn og hafði…Lesa meira

true

Markaðsdagur í Sólbyrgi

Ábúendur í Sólbyrgi í Reykholtsdal buðu upp á markaðsdag í gær, hvítasunnudag, í gróðurhúsunum og sölutjaldi sem slegið var upp af þessu tilefni. Sjálf buðu þau plöntur til sölu en fleiri söluaðilar úr héraði bættust einnig í hópinn. Að sögn Kristjönu Jónsdóttur í Sólbyrgi heppnaðist dagurinn vel og komu um 300 gestir. „Við erum staðráðin…Lesa meira

true

Sögur frá Grundarfirði nú aðgengilegar á vef bæjarins

Árið 1999 stofnuðu „gamlir“ Grundfirðingar félagið Eyrbyggjar, hollvinasamtök Grundarfjarðar. Félagið setti sér metnaðarfull markmið, meðal annars að styðja við menningarstarfsemi, safna og koma á framfæri örnefnum í Eyrarsveit, safna saman lýsingum á fiskimiðum eins og þau urðu til hjá gömlum sjómönnum, safna saman sögulegum fróðleik sem tengdist svæði og samfélagi, sem og sögum frá „yngri“…Lesa meira

true

Lindaskóli varði titilinn í Skólahreysti

Lindaskóli í Kópavogi sigraði Skólahreysti 2020 og vann þar með keppnina annað árið í röð. Úrslitakeppnin fór fram í Laugardalshöll í gær og var æsispennandi allt til enda og lauk Lindaskóli keppni með 43 stig. Heiðarskóli í Reykjanesbæ var í þriðja sæti í fyrra en hafnaði í öðru sæti í ár með 37 stig. Árbæjarskóli…Lesa meira

true

Hópur fjárfesta á Akranesi hefur keypt Norðanfisk ehf.

Í dag var skrifað undir kaupsamning þar sem útgerðarfélagið Brim hf. selur hópi fjárfesta allt hlutafé í Norðanfiski ehf. Fyrirtækið hefur starfsstöð sína við Vesturgötu 5 á Akranesi og eru starfsmenn um þrjátíu talsins. Norðanfiskur sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á sjávarfangi til veitingahúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um allt…Lesa meira

true

Afhenti VR tvö ný orlofshús í Svignaskarði

Í síðustu viku afhenti Eiríkur J. Ingólfsson byggingaverktaki í Borgarnesi Orlofssjóði VR tvö 80,5 fm ný orlofshús í Svignaskarði í Borgarfirði. Það var Emil Gústafsson sem tók við lyklavöldunum en hann fer með eignaumsýslu fyrir félagið. Húsin sem um ræðir eru tvö, Svignaskarð 38 og 42, og hafa verið í byggingu síðustu níu mánuði. Bygging…Lesa meira