Fréttir

true

Viðhaldsstopp framlengt vegna stöðu á stálmörkuðum

Slökkt verður á einum ofni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga fram á sumarið. Þegar Skessuhorn heyrði í Einari Þorsteinssyni forstjóra fyrr í vikunni var reyndar slökkt á öllum þremur, en tveir þeirra voru aðeins úti vegna hefðbundinna þátta. „Einn ofn verður úti eitthvað lengur og búast má við því að hann verði það eitthvað vel fram…Lesa meira

true

Slysavarnadeild Dalasýslu gaf reiðhjólahjálma

Slysavarnadeild Dalasýslu gaf nýverið öllum börnum í 5. og 6. bekk Auðarskóla reiðhjólahjálma og minnti um leið á mikilvægi þess að  nota hjálma þegar ferðast er um á reiðhjólum, línuskautum, hlaupahjólum og sambærilegum tækjum. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu hjálmarnir verið afhentir í Auðarskóla en vegna Covid-19 og takmörkunar á umgengni í skólum fór hópur félaga…Lesa meira

true

Skvett úr klaufunum í Dölum um Hvítasunnuhelgina

Nokkrir ferðaþjónar í Dölum hafa tekið sig saman og búið til fínustu dagskrá fyrir komandi Hvítasunnuhelgi. Þangað er upplagt að fara, ekki síst fyrir fjölskyldufólk sem getur hæglega fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin nær frá föstudegi og til mánudagsins, 2. í Hvítasunnu. Meðal annars verður kúnum á Erpsstöðum hleyptu út með tilheyrandi bægslagangi, samverustund…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að efla og stækka slökkvilið á landsbyggðinni

Átta opinber störf færast á Sauðárkrók á næstunni með breytingum á sviði brunavarna, en þær heyra undir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) eftir sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar um síðustu áramót. Sú eining sem sinnir skipulagningu brunaeftirlits verður þar með hluti af starfsstöð HMS á Sauðárkróki. Fyrir starfa þar um tuttugu manns við úthlutun húsnæðisbóta, í þjónustuveri…Lesa meira

true

Bílabúð Benna 45 ára

Bílabúð Benna er stofnað í maí árið 1975 og fagnar því 45 ára afmæli sínu í ár. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að upphafið á 45 ára sögu fyrirtækisins megi rekja til þess að Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir, þá bæði 17 ára gömul, höfðu komið sér upp aðstöðu fyrir bíla- og mótorhjólaviðgerðir, í…Lesa meira

true

Veitur hyggja á fjölmargar framkvæmdir á Vesturlandi í sumar

Á stjórnarfundi Veitna í vor samþykkti stjórn Veitna ýmsar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem kórónafaraldurinn hefur haft á atvinnulíf landsins. Fyrirtækið vill sýna samfélagslega ábyrgð og auka fjárfestingar í mannaflsfrekum verkefnum sem hafa munu mikil áhrif í samfélaginu, þar á meðal hér á Vesturlandi. „Leiðarljósið er að viðhalda atvinnustigi í landinu eins…Lesa meira

true

Nýtt laugarhús verður byggt við Hreppslaug

Næsta haust og vetur stendur til að byggja nýtt laugarhús við Hreppslaug í Skorradal. Laugin sem byggð var á árunum 1928-29 var friðuð 2014 vegna sögulegs gildis hennar. Hafa félagar í Ungmennafélaginu Íslendingi hlúð vel að henni í áranna rás og hafa nú með stuðningi sveitarfélaganna á svæðinu ákveðið að ráðast í byggingu nýs laugarhúss…Lesa meira

true

Sjómannablað Skessuhorns væntanlegt í næstu viku

Með Skessuhorni í næstu viku fylgir blað tileinkað sjómönnum á Vesturlandi. Þrátt fyrir að hefðbundin hátíðarhöld verði lágstemmd á Sjómannadaginn að þessu sinni, höldum við kúrs í þessari útgáfu. Að venju verður, auk hefðbundinnar dreifingar, Sjómannablaði Skessuhorns dreift frítt inn á öll heimili á Snæfellsnesi í næstu viku. Þeir sem vilja koma efni og auglýsingum…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn tilbúnir fyrir komandi tímabil

Sölvi G. Gylfason er nýr aðalþjálfari meistaraflokks Skallagríms í knattspyrnu en hann tók við liðinu ásamt Viktori Má Jónassyni á miðju síðasta tímabili en verður nú einn í brúnni. Sölvi sem er uppalinn Skallagrímsmaður og vel kunnugur liðinu segist fullur tilhlökkunar fyrir komandi tímabili. „Það leggst mjög vel í mig. Við erum með mun stærri…Lesa meira

true

Skammvinn grásleppuvertíð er nú í gangi

Síðastliðinn miðvikudag hófust grásleppuveiðar í Breiðafirði samkvæmt sérstöku tímabundnu leyfi sem sjávarútvegsráðherra gaf til veiða þar, þegar hann tilkynnti að öðrum grásleppuveiðum yrði hætt 3. maí. Bátum með veiðireynslu á Breiðafirði er nú heimilt að veiða allt að 15 tonn á þessari stuttu vertíð. Jafnframt talaði ráðherra skýrt um það á fundi með grásleppuveiðimönnum í…Lesa meira