Fréttir

true

Spíttbústaður

Umsjónarmenn sumarbústaðar í Hvalfirði höfðu samband við Lögregluna á Vesturlandi í vikunni sem leið. Bústaðurinn er leigður út til skamms tíma í senn og fundu leigusalarnir merki um fíkniefnaneyslu og fíkniefni í bústaðnum. Forprófun á efnunum gefur til kynna að þar sé um að ræða amfetamín, að sögn lögreglu. Málið er til rannsóknar.Lesa meira

true

Nýr bar opnaður innan tíðar á Akranesi

Nýr bar mun verða opnaður við Stillholt 16-18 á Akranesi á næstunni. Barinn hefur fengið nafnið Útgerðin bar og verður í húsnæði sem síðast hýsti Svarta Pétur. Að því er fram kemur á Facebook síðu barsins má gera ráð fyrir að þar verði flutt lifandi tónlist, karaoke auk syngjandi barþjóna. Fleira skemmtilegt verður í boði…Lesa meira

true

Miklar endurbætur gerðar á Bjössaróló í Borgarnesi

Bjössaróló þekkja eflaust margir Borgfirðingar en rólóinn varð til þegar Björn Guðmundsson trésmíðameistari og þáverandi starfsmaður KBB smíðaði leiktæki sem hann setti upp fyrir utan heimili sitt í Borgarnesi. Hann byrjaði að smíða fyrstu leiktækin árið 1979 og bætti svo hægt og rólega við fleiri tækjum og hélt þeim eldri við. Leiktækin eru einstök en…Lesa meira

true

Sjúkraþjálfun Akraness opnuð

Sjúkraþjálfun Akraness var opnuð í síðustu viku við Suðurgötu 126. Stofuna eiga og reka sjúkraþjálfararnir Gunnar Smári Jónbjörnsson, Einar Harðarson, Anna Sólveig Smáradóttir og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, en þau eru öll búsett á Akranesi og voru áður að starfa í Reykjavík. Það er því mikill fengur fyrir Skagamenn og nærsveitunga að fá þau öll til…Lesa meira

true

Metaðsókn í meistaranám við Háskólann á Bifröst

„Horfur eru á því að á árinu 2020 hefji hátt í 200 manns meistaranám við Háskólann á Bifröst.   Í byrjun árs hófu 32 nemendur meistaranám við skólann og á sumarönn bættust 14 nemendur í hópinn.  Miðað við fjölda umsókna má reikna með að 130 – 150 nýir nemendur komi inn á haustönn,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Einstakt að róa á kajak um Breiðafjörð

Kristján Sveinsson rekur fyrirtækið Kontiki Kayaking í Stykkishólmi þar sem hann býður upp á kajakferðir um Breiðafjörð. Kristján ólst upp í Hveragerði og fyrsta kajakinn keypti hann fyrir fermingarpeningana sína. „Ég bjó ekki við sjóinn svo ég keypti straumvatnskajak, svona til að sigla á niður ár og fljót,“ útskýrir hann. Kajaksiglingar hafa síðan verið hans…Lesa meira

true

Fimleikahús við Vesturgötu á Akranesi er nú á lokametrunum

Það styttist í að nýtt fimleikahús verði tilbúið við Vesturgötu á Akranesi. Um er að ræða 1.640 fermetra hús sem er byggt við gamla íþróttahúsið. Einnig er búið að gera upp hluta af aðstöðunni í gamla húsnæðinu og næst verður það hús tekið í gegn að utan, múrverk lagað og húsið málað. Í sal nýja…Lesa meira

true

VR styrkir Gráa herinn til málsóknar gegn ríkinu

Frá því var greint á heimasíðu VR i gær að félagið hefur ákveðið að gerast bakhjarl Málsóknarsjóðs Gráa hersins vegna málsóknar gegn Tryggingastofnun og íslenska ríkinu. Dómsmálið er rekið til þess að ná fram þeirri niðurstöðu að Tryggingastofnun sé óheimilt að skerða ellilífeyri vegna greiðslna frá lífeyrissjóðum. „VR hefur stutt málsóknina frá upphafi og var…Lesa meira

true

Kosið milli tveggja í embætti forseta Íslands

Síðastliðinn föstudag rann út frestur til að skila inn framboðum til forseta Íslands, ásamt lágmarks fjölda meðmælenda. Tveir skiluðu inn framboðum, þeir Guðni Th. Jóhannesson og Guðmundur Franklín Jónsson. Nú er ráðuneytið búið að staðfesta meðmælendalistana og því hefur verið boðað til kosninga til embættis forseta Íslands laugardaginn 27. júní næstkomandi. Raunar er nú þegar…Lesa meira

true

Hefja byggingu nýs gróðurhúss á Laugalandi

Í síðustu viku hófst jarðavegsvinna fyrir byggingu nýs gróðurhúss á Garðyrkjustöðinni Laugalandi í Stafholtstungum. Byggt verður um 1300 fermetra gróðurhús sem bætist þannig við þá 3600 fermetra sem nú eru undir gleri. Á næstu tveimur mánuðum verður mokað fyrir húsinu og steyptur grunnur en síðan er ráðgert að í ágúst hefjist vinna við reisingu hússins.…Lesa meira