
Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Snæfellsnesvegi við Borg á Mýrum seint á laugardagskvöld, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn viðurkenndi neyslu og veitti sýni, sem gaf jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann heimilaði leit í bíl og þar fundust pokar með ætluðum kannabisefnum.Lesa meira








