Fréttir

true

„Ferðaþjónustan mun koma okkur upp úr þessu aftur“

Bjarnheiður Hallsdóttir var fyrir helgi endurkjörin formaður Samtaka ferðaþjónustunnar til næstu tveggja ára. Bjarnheiður var kjörin formaður SAF á vormánuðum 2018 og segir ekki annað hafa komið til greina en að gefa kost á sér áfram. „Það má eiginlega segja að um leið og ég byrjaði hafi stóru krísurnar skollið á ferðaþjónustuna, hver á eftir…Lesa meira

true

Dalamenn mótmæla stöðvun grásleppuveiða

Byggðarráð Dalabyggðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að stöðva grásleppuveiðar. Segir ráðið að stöðvun veiðanna komi mjög illa við Dalabyggð. Í sveitarfélaginu sé starfandi fiskvinnslufyrirtækið Sæfrost ehf. sem hafi starfsemi af frystingu hrogna. Á síðasta ári hafi Sæfrost verið næst stærst í grásleppuvinnslu á landsvísu, með á sjötta hundrað tonn. Undanfarin ár hafi…Lesa meira

true

Verður sterkasta golfmót sem haldið hefur verið á Íslandi

Allir bestu kylfingar landsins mæta til leiks á Hlíðavelli í Mosfellsbæ til þátttöku á fyrsta móti tímabilsins, ÍSAM mótinu, á heimslistamótaröðinni á Íslandi 16.-17. maí. Íslensku atvinnukylfingarnir eru nú allir á landinu og fá að taka þátt. Þetta verður því án efa sterkasta mót sem haldið hefur verið í langan tíma á Íslandi, að því…Lesa meira

true

Fyrstu íbúarnir fluttir inn í nýtt fjölbýlishús

Síðastliðinn fimmtudag fluttu fyrstu íbúarnir inn í nýtt fjölbýlishús við Stillholt 21 á Akranesi. Það er Þingvangur sem byggir og selur íbúðirnar í þessu 37 íbúða og tíu hæða fjölbýlishúsi. Húsið er systurblokk við Stillholt 19 sem byggt var fyrir 14 árum. Búið er að selja meirihluta íbúðanna í húsinu, en að sögn Hákons Svavarssonar,…Lesa meira

true

Nýtt skipurit SSV kynnt í gær

„Stöndum sterkari eftir þessa breytingu“ Á streymisfundi Markaðsstofu Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldinn var í gærmorgun, var kynnt nýtt skipurit SSV. Er það til komið vegna sameiningar Vesturlandsstofu og SSV en ætlunin er að með breytingunni megi efla samstarf stoðþjónustunnar við ferðaþjónustuna í landshlutanum, eins og fram kom í máli Páls S.…Lesa meira

true

Hljómlistarfélagið færði tónlistarskólanum góðar gjafir

Síðdegis í dag barst Tónlistarskóla Borgarfjarðar höfðingleg gjöf þegar Hljómlistarfélag Borgarfjarðar gaf skólanum búnað til að efla unga og efnilega tónlistarmenn í Borgarbyggð og vekja hjá þeim enn meiri áhuga fyrir náminu. „Einnig erum við að gefa búnað sem getur komið sér vel til að koma starfi skólans á framfæri; jafnt til foreldra, nemenda og…Lesa meira

true

Hryllilega stuttar hrollvekjur

Í dag kom út ný bók eftir metsöluhöfundinn Ævar Þór Benediktsson; Hryllilega stuttar hrollvekjur. Ævar var myrkfælinn þangað til að hann varð sautján ára og í bókinni skrifar hann um allt sem hann var hræddur við. Hryllilega stuttar hrollvekjur geymir tuttugu smásögur sem eru hver annarri hræðilegri. „Meðal annars má lesa um vampírur, uppvakninga, drauga…Lesa meira

true

Ferðafólk fari í sýnatöku eftir 15. júní

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að því að eigi síðar en15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í tveggja vikna sóttkví. Þá er gert ráð fyrir að nýleg vottorð um sýnatöku erlendis verði einnig tekin til greina meti…Lesa meira

true

Barn brenndist í heitu vatni

Haft var samband við Neyðarlínu kl. 18:30 í gær. Húsráðendur á Akranesi voru að þrífa baðkar og mjög heitt vatn því látið renna í karið. Að sögn lögreglu fór barn ofan í heitt vatnið og brenndist. Var barnið flutt á sjúkrahúsið á Akranesi og þaðan á bráðamóttöku Barnaspítalans við Hringbraut.Lesa meira

true

Samið við banka um brúarlán

Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól Seðlabanka Íslands að annast framkvæmd á ábyrgðum ríkissjóðs og hefur bankinn undirritað samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.Lesa meira