Fréttir

true

Gunnlaugur stefnir Borgarbyggð og krefst 60 milljóna króna

Gunnlaugur A Júlíusson, fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar, krefur sveitarfélagið um 60 milljónir króna vegna uppsagnar hans úr starfi í nóvember síðastliðnum. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Vesturlands fyrr í þessum mánuði og greindi fréttavefur Ríkisútvarpsins frá innihaldi hennar. Gunnlaugi var sagt upp störfum í nóvember síðastliðnum og telur að á sér hafi verið brotið. Í…Lesa meira

true

Stálu bílum í Reykhólasveit og grunuð um margháttuð brot

Seint í gærkvöldi handtóku lögreglumenn frá Vesturlandi og Vestfjörðum þrennt; tvo karlmenn og eina konu, á Vestfjarðavegi við Sælingsdal í Dölum. Fólkið var á tveimur bifreiðum, sem báðum hafði verið stolið fyrr um kvöldið í Reykhólasveit. Skömmu áður en lögreglan kom á vettvang hafði ökumaður velt annarri bifreiðinni en þó ekki hlotið alvarleg meiðsli. Ökumenn…Lesa meira

true

Söngurinn léttir vissulega lundina

Í Facebook hópnum „Syngjum veiruna burt – öllum frjálst að vera með“ eru meðlimir orðnir tæplega 20 þúsund talsins. Þar inni hefur fólk deilt myndböndum af sér syngja ýmis lög til að vekja gleði og samhug á meðan faraldur kórónuveirunnar stendur yfir. „Það veit það hver heilvita maður að við náum ekki að losa okkur…Lesa meira

true

Olíunotkun í sjávarútvegi aldrei minni

Olíunotkun í sjávarútvegi var rétt rúm 133 þúsund tonn á árinu 2019. Það er minnsta notkun í greininni frá upphafi mælinga, sem ná aftur til ársins 1982 og þá fyrir daga kvótakerfisins. Olíunotkun fiskiskipa nam 130 þúsund tonnum á árinu og dróst saman um rúm 4% frá fyrra ári. Samdrátturinn var öllu meiri í olíunotkun…Lesa meira

true

Spólaði upp æfingasvæðið

Ökumaður varð uppvís að því á miðvikudaginn í síðustu viku að spóla í hringi á bifreið sinni á æfingasvæði knattspyrnufélags ÍA á Akranesi. Að sögn lögreglu er búið að finna út úr því hver þarna var á ferðinni. Myndir náðust af athæfinu og er málið til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hafði ökumaðurinn fyrr sama…Lesa meira

true

Fylgi við ríkisstjórnina dalar og mælist nú 51,1%

MMR birti í dag nýja könnun á fylgi stjórnmálaflokka hér á landi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,7%, sem er tæpu prósentustigi minna en í könnun MMR sem gerð var í byrjun apríl en á pari við fylgi flokksins í febrúar. Samfylkingin mældist næst með 13,1% fylgi, um prósentustigs lækkun frá síðustu mælingu. Fylgi Vinstri grænna…Lesa meira

true

Fermeters gat uppgötvaðist á botni sjókvíar í Patreksfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi (Fjarðalaxi) miðvikudaginn 15. apríl um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Eyri í Patreksfirði. Gatið uppgötvaðist um kl. 11:00 miðvikudaginn 15. apríl við reglubundið neðjansjávareftirlit. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á botni nótarpokans eða á 35m dýpi og var það um 100×100 cm. Í kvínni voru um 100.000 laxar…Lesa meira

true

Landsmóti hestamanna frestað um ár

Sú ákvörðun hefur verið tekin af Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda og Rangárbökkum, þjóðaleikvangi íslenska hestsins ehf., að fresta Landsmóti hestamanna sem fara átti fram á Hellu dagana 6. – 11. júlí. Í samráði við Hestamannafélagið Sprett mun mótið fara fram á Hellu sumarið 2022. Af þeim sökum verður Landsmót hestamanna haldið í Kópavogi árið 2024…Lesa meira

true

Engin fjölgun nýrra smita í dag

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að tilkynna um stöðu smita af Covid-19 í landshlutanum. Staðan er óbreytt frá í gær, en alls hafa 40 einstaklingar verið greindir með smit. Af þeim eru 11 ennþá í einangrun. 37 manns eru í sóttkví á Vesturlandi. Enn hefur ekkert smit verið greint á svæði heilsugæslunnar…Lesa meira

true

Borgarbyggð kynnir áhersluatriði til viðspyrnu vegna Covid-19

„Sveitarstjórn, sveitarstjóri og starfsmenn Borgarbyggðar hafa undanfarnar vikur unnið hörðum höndum að útbúa aðgerðaáætlun um hvernig megi koma til móts við bæði heimili og atvinnulífið á þessum erfiðum tímum. Það þarf að vanda vel til verka og greina hvaða aðgerðir koma sér best fyrir íbúa, fyrirtæki og þjónustu í sveitarfélaginu,“ segir í tilkynningu. „Það þarf…Lesa meira