Fréttir

true

Ekki undanþegin heimilisofbeldi

Vesturland hefur ekki á undanförnum dögum og vikum verið undanþegið heimilisofbeldi og heimilisófriði, frekar en aðrir landshlutar. Mál tengd heimilisofbeldi hafa komið inn á borð lögreglunnar hér í landshlutanum undanfarið eins og annars staðar á landinu. Hafa þau farið í hefðbundinn farveg, að sögn lögreglu.Lesa meira

true

Samþykktu nýjan samning

Nýr kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við ríkið var samþykktur í dag í almennri atkvæðagreiðslu. Kjörsókn var 70,73%. Já sögðu 58,62%, Nei sögðu 37,93% og 3,45% skiluðu auðu. „Samningurinn var lagður fyrir vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og byggður á lífskjarasamningunum,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Hreinsunarátak hefst í þéttbýli Borgarbyggðar í dag

Nú í vikunni frá 17. til 24. apríl gengst Borgarbyggð fyrir hreinsunarátaki í þéttbýli sveitarfélagsins. Þá verða gámar fyrir gróðurúrgang, málma og timbur aðgengilegir á Bifröst, Varmalandi, Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri. Gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi verður opin sunnudag til föstudags milli klukkan 14:00 og 18:00 og laugardag milli klukkan 10:00 og 14:00. Sjá nánar auglýsingu…Lesa meira

true

Buðu út stækkun Flateyjarbryggju

Reykhólahreppur og Vegagerðin auglýstu nýverið eftir tilboðum í stækkun á ferjubryggjunni í Flatey á Breiðafirði og steypta sjóvörn. Í verkinu felst stækkun bryggjunnar um 45 m2, staurarekstur, bygging burðarvirkis og klæðning. Samhliða því á að gera við ferjubryggjuna; endurnýja skemmda hluta hennar og steypa sömuleiðis upp um 30 metra langa sjóvörn.  Samkvæmt útboðinu á verkinu…Lesa meira

true

Stígakerfið við Akranes kjörið til æfinga fyrir þríþrautarkonuna

Fremsta þríþrautarkona landsins; Guðlaug Edda Hannesdóttir, var mjög nálægt því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókyó, þegar leikunum var frestað um ár vegna kórónuveirunnar. En hún deyr ekki ráðalaus þrátt fyrir það og heldur sér áfram í formi. Meðal annars mátti sjá það í frétt í Vísi nýverið þar sem hún synti í…Lesa meira

true

Nýtt fimleikahús tilbúið í júní

Nú er tekið að styttast í opnun nýs fimleikahúss við Vesturgötu á Akranesi. Frá því er greint á vef Akraneskaupstaðar að í byrjun júní muni starfsemi hefjast í húsinu og fyrirtækið Spennt ehf. ljúka verkinu sem hófst haustið 2018. Verklok hafa nú tafist miðað við upphaflega áætlun um hálft ár. Nýja fimleikahúsið er 1.640 m2…Lesa meira

true

Árleg stórsýning í Brákarey fellur niður í vor

Stjórnir Fornbílafjélags Borgarfjarðar og Bifhjólafjélagsins Raftanna, en bæði félögin hafa aðsetur sitt í Brákarey í Borgarnesi, hafa ákveðið að árleg stórsýning bíla og mótorhjóla í Brákarey fellur niður í vor. Sýningin hefur mörg undanfarin ár verið haldin aðra helgina í maí og ætíð verið vel sótt. Þá er Samgöngusafnið í Brákarey enn lokað vegna samkomutakmarkanna,…Lesa meira

true

Samfés þessa árs hefur verið aflýst

Stjórn Samfés, samtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, hefur tekið þá ákvörðun að aflýsa SamFestingnum 2020 vegna COVID-19. „Í byrjun mars var ákveðið að fresta viðburðinum til 22.-23. maí í þeirri von um að aðstæður yrðu þá aðrar. Þrátt fyrir ánægjulegar fréttir um að dregið verði úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi næstu vikur leggur…Lesa meira

true

Ráðherra flýtir greiðslum til sauðfjárbænda

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð sem flýtir stuðningsgreiðslum við sauðfjárrækt á þessu ári um nokkra mánuði. Upphæðir sem koma áttu til greiðslu 1. september og 1. október 2020, verður flýtt til 1. maí og 1. júní. Með því að flýta greiðslunum kveðst ráðherra vera að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á íslenskan landbúnað,…Lesa meira

true

Fjárfestingar í húsnæðismálum og atvinnuþróun

Aukin fjárveiting til viðhalds og framkvæmda er ein þeirra aðgerða sem Akraneskaupstaður ætlar að ráðast í til að mæta áhrifum Covid-19 á efnahagslíf bæjarfélagsins. Á árinu hafa þegar verið áformaðar fjárfestingar sem nema rúmum 1,5 milljörðum en til að tryggja verktökum og starfsfólki atvinnu stendur til að gefa enn frekar í með flýtiframkvæmdum. Ætlunin er…Lesa meira