Fréttir

true

Viðskiptahraðall fyrir nýjar lausnir í matvælaiðnaði og á sviði smásölu

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Til Sjávar og sveita sem fram fer haustið 2020. Óskað er eftir öflugum teymum með verkefni sem snúa að hátækni í matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi. Sérstaklega er óskað eftir nýjum tæknilausnum…Lesa meira

true

Samið við VÍS um tryggingar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 8. apríl síðastliðinn að ganga að tilboði VÍS í tryggingar sveitarfélagsins. Byggðarráð hafði áður samþykkt tilboðið, en sveitarstjórn vísað því aftur til umræðu í byggðarráði. Eins og áður hefur verið rakið á síðum Skessuhorns úrskurðaði kærunefnd útboðsmála í febrúar að Borgarbyggð mætti ekki gera þá kröfu í útboðsskilmálum að…Lesa meira

true

Vestlendingar gera það besta úr aðstæðunum

Samkomubann hefur staðið í rúmlega mánuð og haft töluverð áhrif á daglegt líf okkar flestra. Skessuhorn heyrði í nokkrum íbúum á Vesturlandi og ræddi við þá um hvaða áhrif þetta ástand hefur á þeirra líf. Heilt yfir voru viðmælendur blaðsins jákvæðir og bjartsýnir og reyna að gera það besta úr þessum aðstæðum. Sjá Skessuhorn sem…Lesa meira

true

Fólki er að berast fjárkúgun í hótunarpósti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bendir á að á síðustu dögum hafi borist tilkynningar frá fólki sem fengið hefur ógnandi og grófa pósta þar sem reynt er að kúga fé af því. Sendandinn þykist hafa komist í tölvu viðtakanda og hafi yfirtekið tölvuna og náð myndefni af brotaþola þar sem hann/hún sé að skoða klámsíður. Ef greiðsla…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst með nám fyrir alla í sumar

Háskólinn á Bifröst ætlar að koma til móts við óskir um aukið námsframboð í sumar og skólinn opnaður öllum. Með því er verið að bregðast við ósk menntamálaráðherra um sumarnám í háskólum. Boðið verður upp á sumarnámskeið fyrir alla landsmenn frá 18. maí til 3. júlí í fjarnámi. Nýnemar geta hafið háskólanám strax í maí…Lesa meira

true

Staða íþróttafélaga mótast af afkomu fyrirtækja

„Áður en samkomubann var sett á og allt það stefndi þegar í erfitt ár rekstrarlega. Reksturinn gekk illa í fyrra, mjög illa meira að segja, og alveg rétt að segja það bara eins og það er. Félagið tapaði miklum peningum á rekstrinum. En á móti kemur að félagið er ekki mjög skuldsett, sem betur fer,“…Lesa meira

true

Afborganir námslána verða lækkaðar

Tekjutengd afborgun námslána lækkar þegar bæði vextir og endurgreiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN verða lækkuð á næstunni. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafnræði og uppgreiðsluafsláttur hækkaður upp í allt að 15% þegar tillögur um að bæta stuðning við greiðendur námslána verða innleiddar. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd…Lesa meira

true

„Vellíðan í lífi, leik og starfi er forsenda velgengni“

„Ef það hefur einhvern tímann verið þörf, þá er það núna,“ segir Aldís Arna Tryggvadóttir, umdæmisstjóri Streituskólans á Vesturlandi, um hversu mikilvægt það sé að huga vel að andlegri heilsu. Streituskólann stofnaði Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir árið 2002 sem fræðslu-, mannræktar- og lækningasetur. Hann var þá fyrstur hér á landi til að tala um kulnun…Lesa meira

true

Vinna við Esjubraut hafin að nýju

Gatnaframkvæmdir við Esjubraut á Akranesi hófust að nýju í dag. Götunni hefur því verið okað fyrir umferð. Eins og áður hefur verið greint frá var gert hlé á framkvæmdum í febrúar vegna frosts í jörðu og óhagstæðrar veðurspár. Þá var opnað tímabundið fyrir umferð um götuna milli Smiðjuvalla og Þjóðbrautar og áformað að halda vinnu…Lesa meira

true

Vigdís Finnbogadóttir er níutíu ára í dag

Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands fagnar í dag, 15. apríl, 90 ára afmæli sínu. Vigdís var kjörin forseti Íslands árið 1980 og gegndi því embætti í fjögur kjörtímabil, eða til ársins 1996. Vigdís varð fjórði forseti Íslands eftir lýðveldisstofnun. Hún var jafnframt fyrsta konan í heiminum sem valin var í lýðræðislegum kosningum til að…Lesa meira