
Vinna er hafin við gerð nýrrar ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes. Verkefnið er samstarfsverkefni Markaðsstofu Vesturlands, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar og Kjósarhrepps. Það er eitt af áfangastaðaverkefnum Vesturlands og, að sögn Thelmu Harðardóttur hjá Markaðsstofu Vesturlands, er áætlað að leiðin verði opnuð árið 2021. „Ferðaleiðin verður mikil markaðsleg búbót fyrir svæðið og verður hönnuð bæði með íslenskan…Lesa meira








