Fréttir

true

Færðu dvalarheimilinu og bókasafninu gjafir

Miðvikudaginn 1. apríl síðastliðinn færði Lionsklúbbur Stykkishólms íbúum Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi þrjár iPad spjaldtölvur að gjöf. Kristín Sigríður Hannesdóttir forstöðumaður, Anna María Rafnsdóttir og Tatjana Spasojeviv Svitlica veittu gjöfunum viðtöku fyrir hönd heimilisins. Amtsbókasafninu í Stykkishólmi var einnig færður hátalari og hljóðnemi að gjöf sama daginn, til að nota á fundum og öðrum viðburðum…Lesa meira

true

Fjölmargir til taks í bakvarðasveit Höfða

Fyrir nokkru var auglýst eftir fólki í bakvarðarsveit fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi. „Okkar starfsemi eru þannig að það er ekki hægt að minnka eða hætta þjónustu og við þurfum að hafa starfsfólk til taks allan sólarhringinn, alla daga. Við óskuðum því eftir aðstoð frá einstaklingum sem væru til í að stökkva til…Lesa meira

true

Líflambaflutningar yfir varnarlínur óheimill nema með leyfi

Opnað hefur verið fyrir umsóknir til líflambaflutnings í Þjónustugátt Matvælastofnunar. Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí samkvæmt reglugerð um flutning líflamba milli landssvæða. Til þess að hefta útbreiðslu smitsjúkdóma í búfénaði og stuðla að útrýmingu sjúkdóma er óheimilt að flytja sauðfé, geitur og nautgripi yfir varnarlínur nema með leyfi frá Matvælastofnun. Þá er einnig bannað að flytja…Lesa meira

true

Skora á ráðherra að tryggja dýralæknaþjónustu

„Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að tryggja dýralæknaþjónustu í dreifbýli Íslands. Ljúka þarf vinnu starfshóps um endurskoðun þjónustusamninga sem fyrst og tryggja sjálfstætt starfandi dýralæknum í dreifbýli ásættanleg starfskjör. Dýralæknar gegna mikilvægu hlutverki varðandi velferð dýra og eru mikilvægur hlekkur í fæðuöryggi Íslands,“ segir í ályktun sem sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 2.…Lesa meira

true

Hægt að horfa og kjósa um fyndnustu gamanmyndina

Alls voru á þriðja tug gamanmynda sendar inn í 48 stunda gamanmyndakeppnina sem Gamanmyndahátíð Flateyrar og Reykjavík Foto stóðu fyrir. Nú eru allar gamanmyndirnar í keppninni aðgengilegar á heimasíðu Gamanmyndahátíðar Flateyrar ( https://www.IcelandComedyFilmFestival.com ) Þar geta landsmenn notið þess að horfa á fjölbreyttar og skemmtilegar gamanmyndir með þemanu “Heppni / Óheppni” sem voru aðeins unnar á…Lesa meira

true

Vegriðin tóku til sín snjó

Færð spilltist í gærmorgun á nokkrum stöðum á Snæfellsnesi. Talsverður snjór var innanbæjar bæði í Ólafsvík og Grundarfirði og ófært á milli staðanna. Eins og sjá má á myndinni hlóðst snjórinn upp við vegriðin á þjóðveginum, t.d. í austanverðum Búlandshöfða og við Holalæk milli Ólafsvikur og Grundarfjarðar.Lesa meira

true

Flýta lagningu jarðstrengs á Fellsströnd og Laxárdal

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gengið frá útfærslu 100 milljóna króna fjárfestingar við lagningu dreifikerfis raforku í jörðu í samræmi við sérstakt tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda. Gengið hefur verið frá samkomulagi við Rarik og Orkubú Vestfjarða um framkvæmdirnar. Ákveðið hefur verið að fjármunirnir nýtist þannig að 50 milljónir króna fara í strenglagningarverkefni hjá Rarik við Laxárdal og…Lesa meira

true

Vilja að Klofningsvegur verði tilraunaverkefni og lagður slitlagi

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 2. apríl síðastliðinn var m.a. fjallað um tengivegi í Dalabyggð. Málið var tekið fyrir í sveitarstjórn í framhalda af því að sveitarfélaginu barst afrit af áskorun íbúa og hagsmunaaðila á Fellsströnd og Skarðsströnd til Vegagerðarinnar þess efnis að ráðast verði í úrbætur á Klofningsvegi. Sveitarstjórn samþykkti eftirfarandi: „Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar á…Lesa meira

true

Streymt verður frá beint frá páskaguðsþjónustu í Borgarneskirkju

Vegna ríkjandi samkomubanns hefur Borgarneskirkja í samvinnu við Kvikmyndafjelag Borgarfjarðar (KB) ákveðið að senda beint út frá guðsþjónustu kl 11:00 á páskadagsmorgun. Steymið mun hefjast klukkan 10:40 og meðfylgjandi er beinn linkur á streymið: https://www.youtube.com/watch?v=_bgJuaVZHhg Einnig er hægt að nálgast streymið ásamt öllu öðru efni KB á Youtube-rás félagsins á www.kvikborg.is. Þegar nær dregur veður…Lesa meira

true

Hollvinasamtök HVE kaupa átta ný rúm

Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hefur tekið ákvörðun um kaup á átta nýjum sjúkrarúmum, dýnum og gálgum, að fjárhæð 5,2 milljónir króna. Þau rúm koma til viðbótar við þau 17 sjúkrarúm sem þegar var búið að kaupa og afhenda HVE. Söluaðili átti fjögur rúm á lager og koma þau til afhendingar strax. Eitt þetta fer á…Lesa meira