Fréttir

true

Engin ný smit í landshlutanum

Engin ný Covid-19 smit hafa greinst á Vesturlandi síðan í gær, samkvæmt tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú rétt í þessu. Rétt eins og fyrir sólarhring síðan hafa 37 verið greindir og jafnmargir eru í einangrun. Eins og í gær hefur því 21 smit greinst út frá heilsugæslustöðinni í Borgarnesi, tíu á Akranesi, fjögur…Lesa meira

true

„Þegar stoðkerfið lamast þarf að bregðast við“

Eftir að kórónaveiran nam hér land hefur verið í mörg horn að líta hjá embættis- og ráðamönnum. Undir ráðuneyti félags- og barnamála eru málaflokkar sem taka stökkbreytingum í umfangi þegar á bjátar, svo sem félagsmál, húsnæðismál og ekki síst vinnumarkaðsmálin. Ásmundur Einar Daðason er félags- og barnamálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við…Lesa meira

true

Aðgerðir upp á 3,4 milljarða

Akraneskaupstaður spyrnir við áhrifum af Covid-19   Akraneskaupstaður hefur kynnt 14 aðgerðir til að mæta áhrifum Covid-19 faraldursins. Heildarumsvif þeirra nema 3,38 milljörðum króna. Aðgerðunum er skipt upp í þrjá þætti; varnir til að aflétta óvissu innan samfélagsins, vernd til að vernda grunnstoðir samfélagsins og viðspyrnu til að stuðla að fjölgun atvinnutækifæra. Alger samstaða ríkir…Lesa meira

true

Gæða handspritt framleitt hjá Pure Spirit í Borgarnesi

Hjá fyrirtækinu Pure Spirit ehf. í Borgarnesi starfa að jafnaði 6-8 manns við átöppun áfengra drykkja og við vínframleiðslu. Í síðustu viku breyttist vinnulagið þó talsvert því byrjað var að framleiða handspritt úr etanóli sem jafnan er hráefni til áfengisframleiðslu. Magnús Arnar Arngrímsson forsvarsmaður fyrirtækisins segir í samtali við Skessuhorn að borist hafi beiðni til…Lesa meira

true

Göt á sjókví í Arnarfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi fimmtudaginn 2. apríl síðastliðinn um þrjú göt á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði. Götin uppgötvuðust seinni partinn 2. apríl þegar verið var að sækja fisk til slátrunar. Nótarpoki var hífður upp og tóku starfsmenn eftir götunum og gerðu við þau. „Samkvæmt upplýsingum Arnarlax voru rifurnar á 1,5…Lesa meira

true

Koma til starfa við óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu

Eins og Skessuhorn hefur greint frá tóku tveir nýir prestar til starfa í Garða- og Saurbæjarprestakalli um nýliðin mánaðamót. Það eru þær sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Þóra Björg Sigurðardóttir sem nú koma til liðs við sóknarprstinn sr. Þráinn Haraldsson. „Við erum að móta starfið og hvernig samstarfið okkar kemur til með að vera,“ segir…Lesa meira

true

Vilja að skráningu á vanskilaskrá verði hætt

„Alþýðusamband Íslands og Neytendasamtökin krefjast þess að Creditinfo-Lánstraust hætti tafarlaust skráningum á vanskilaskrá sína vegna greiðsluvanda tengdum Covid19 og skrái engan á vanskilaskrá vegna þessa út árið 2020,“ segir í tilkynningu. Fram kemur í yfirlýsingu samtakanna að efnahagslegar afleiðingar vegna Covid19 verða þungbærar og sennilega umfangsmeiri en fyrri efnahagshremmingar. „Fyrirtæki og einstaklingar munu verða fyrir…Lesa meira

true

Sagði ekki frá sóttkví fyrr en komið var á stöðina

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur á fimmtudaginn. Maðurinn ók bifreið sinni um Vesturlandsveg undir Hafnarfjalli á 151 km hraða á klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Strokpróf, sem framkvæmt var á staðnum, gaf enn fremur jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Var maðurinn því handtekinn, færður á lögreglustöðina í Borgarnesi…Lesa meira

true

Farþeginn hafði ekki verið í sóttkví

Maður greindi frá því í samtali við mbl.is á fimmtudag að hann hefði skutlað erlendum manni sem síðan hafi komið í ljós að hafi átt að vera í sóttkví, þar sem sá síðarnefndi bað um far fyrir sig og innkaupapokana fyrir utan Bónus í Borgarnesi. Vegna þessa kannaði lögregla málið og komst að því að…Lesa meira

true

Prjóna til góðs lykkju fyrir lykkju

Kraftur og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hafa hrundið af stað verkefninu „Lykkja fyrir lykkju“ og hvetja félögin alla sem sokki geta valdið til að taka þátt í verkefninu. „Við fórum af stað með þetta verkefni í tilefni af 50 ára afmæli Krabbameinsfélags Borgarfjarðar og við erum viss um að þetta muni takast vel til. Það er fullt…Lesa meira