Fréttir

true

Sveinspróf verða haldin

Mennta- og menningarmálaráðherra, ásamt skólameisturum starfsmenntaskóla og umsýsluaðilum sveinsprófa, hafa tekið saman höndum til að finna leiðir svo tryggja megi náms- og próflok hjá þeim sem nú stefna að sveinsprófum, þrátt fyrir tímabundnar lokanir skólabygginga og margra vinnustaða. Sveinspróf verða að þessu sinni haldin 3-5 vikum eftir annarlok og eigi síðar en 15. september. Allir…Lesa meira

true

Ætlar að kaupa sér rafmagnsbíl fyrir hluta stóra vinningsins

„Það var bjart yfir vinningshafa sexfalda Lottópottsins sem kom í Íslenska getspá í dag til að ganga frá sínum málum. Vinningurinn var verulega vænn, tæpar 79,5 skattfrjálsar milljónir en miðann hafði hann keypt hjá N1 við Bíldshöfða,“ segir í tilkynningu frá Getspá. Vinningshafinn er Reykvíkingur sem spilar nokkuð reglulega í lottóinu og notar yfirleitt sömu…Lesa meira

true

Samþykktu nýjan samning

Nýr kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við Samband íslenskra sveitarfélaga var samþykktur í dag hjá LSS með 79,7% greiddra atkvæða.Lesa meira

true

Smit alls staðar nema í Dölum

Alls hafa 37 smit Covid-19 verið greind á Vesturlandi, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú fyrir hádegi. Í einangrun eru 37 manns og 261 eru í sóttkví. Smitum fjölgaði um tvö í landshlutanum undanfarinn sólarhring. Eitt nýtt smit greindist á Akranesi og fyrsta smitið greindist í Snæfellsbæ. Nú hefur því greinst smit út…Lesa meira

true

Góðverk í Dölum á tímum Covid-19

Þrátt fyrir fjarlægð manna á milli í samkomubanni er ekki frá því að fólk standi enn þéttar saman nú þegar á reynir.  Á samfélagsmiðlum birtust um helgina ýmsar þakkarfærslur frá íbúum í Búðardal sem höfðu fengið óvæntan glaðning heim að dyrum. Hverjir leynivinirnir eru skal ósagt látið en vitað er til þess að a.m.k. tveir…Lesa meira

true

Skessuhorn prentað í kvöld

Til að Skessuhorn komist í hendur lesenda fyrir páskahátíðina verður lokið við vinnslu blaðs vikunnar í dag, mánudaginn 6. apríl, og það prentað í kvöld. Útgáfudagur verður því þriðjudagurinn 7. apríl. Skilafrestur efnis og auglýsinga til birtingar í blaðinu er því í síðasta lagi fyrir klukkan 14 í dag. Markaðsdeild hefur netfangið; auglysingar@skessuhorn.is en ritstjórn;…Lesa meira

true

Tvær framandi dýrategundir á leið til landsins

Umhverfisstofnun veitti nýverið tvö aðskilin leyfi til innflutnings á annars vegar fjórum risaköngulóm (tarantúlum) frá Þýskalandi og hins vegar fjórum fésuglum frá Bretlandi. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fær köngulærnar til sýnis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þá fær Sigrún Kærnested Óladóttir leyfi til innflutnings á fjórum fésuglum til að hafa til sýnis og fræðslu í sérútbúnu húsi…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir á Vesturlandi

Rafmagn fór af Grundarfjarðarlínu við Kötluholt um klukkan 7 í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá Rarik er enn unnið að viðgerð. Þá fór rafmagn að Saurbæjarlínu í Dölum seint í gærkvöldi, en viðgerð lauk um þrjúleitið í nótt.Lesa meira

true

Stærsta dreifing íslenskrar vöru frá upphafi

Um miðja síðustu viku hófst sala á Ísey skyri í um 50.000 verslunum í Japan. Um leið hófst eitt víðtækasta dreifingarverkefni sem um getur á íslenskri vöru í erlendri smásölu til þessa. Þrátt fyrir að vera ein dýrasta mjólkurvaran í Japan þá hefur skyrið fengið góða uppstillingu eða staðsetningu á flestum stöðum, enda seldist það…Lesa meira

true

Byrjað að dreifa brúnum tunnum í Borgarnesi

Sveitarfélagið Borgarbyggð er nú byrjað dreifingu á brúnum tunnum í Borgarnesi og verður því verki lokið á næstu dögum og vikum, eins og segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Tunnurnar verða síðan tæmdar á þriggja vikna fresti bæði í dreifbýli og þéttbýli og því sem safnast skilað til jarðgerðar. Í brúnar tunnur verður íbúum gert…Lesa meira