Fréttir

true

Í Dölunum er áhersla á að milda aðstæður fyrir íbúa

Að sögn Kristjáns Sturlusonar sveitarstjóra er verið að skoða hvernig megi minnka höggið á fjölskyldur í Dalabyggð.  „Við erum að skoða aðgerðir bæði til skemmri og lengri tíma. Byggðarráð hefur fjallað um málið og þetta verður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar núna á fimmtudaginn. Til umfjöllunar er að fella niður gjöld fyrir þjónustu sem fólk…Lesa meira

true

Lionsmenn gáfu spjaldtölvur á Höfða

Þeir komu færandi hendi forsvarsmenn Lionsklúbbs Akraness í dag þegar þeir gáfu Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili að gjölf fjórar Ipad spjaldtölvur, ásamt heyrnartólum. Það voru þau Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri og Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri sem veittu gjöfinni viðtöku. Að sögn Benjamíns Jósefssonar hjá Lionsklúbbi Akraness ákvað klúbburinn að bregðast skjótt við í ljósi þess að…Lesa meira

true

Samstaða og jákvæðni í Stykkishólmi þó gefi á bátinn

Í Stykkishólmi ætlar bæjarstjórn, að sögn Jakobs Björgvins Jakobssonar bæjarstjóra, að bregðast við þessu áður óþekkta ástandi með það að leiðarljósi að milda höggið fyrir bæði heimilin og fyrirtækin í bænum. „Þetta er í undirbúningi eins og er og engar formaðar tillögur komnar fram en við munum á næstu dögum og vikum leggjast yfir þetta…Lesa meira

true

Vilja auka atvinnusköpun á Akranesi

Á Akranesi er að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra búið að ræða ýmsar hugmyndir um hvernig skuli brgðast við afleiðingum Covid-19 en ekki sé búið að taka endanlegar ákvarðanir um allt. Búið er að ákveða að fella niður gjöld fyrir þjónustu sem fólk getur ekki nýtt sér vegna þeirra aðstæðna sem hafa nú komið upp,…Lesa meira

true

Ýmis járn í eldinum í Borgarbyggð

Þórdís Sif Sigurðardóttir fékk sannarlega stórt verkefni til að takast á við á fyrstu dögum sínum sem sveitarstjóri í Borgarbyggð. Hún lagði áherslu á að koma sér vel inn í mál kórónuveirunnar og segir hún að í Borgarbyggð hafi strax verið ákveðið að mikilvægt væri að koma til móts við fjölskyldur og fyrirtæki í sveitarfélaginu…Lesa meira

true

Sungu fyrir samborgarana

Nemendur í fimmta bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar glöddu eldri samborgara sína í gærmorgun. Fylktu þeir liði að dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík og skemmtu íbúum þar með söng. Íbúarnir hlýddu á í gegnum gluggana, en heimsóknir á heimilið eru sem kunnugt er óheimilar sem stendur. „Krakkarnir voru einlægir, stilltu sér upp fyrir utan Jaðar og…Lesa meira

true

Heimild til að fækka mjólkursýnum

Landbúnaðarráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um stuðning í nautgriparækt. Með henni verður ráðuneytinu nú heimilt við sérstakar aðstæður að veita undanþágu frá skilyrði um að skila þurfi inn niðurstöðum mjólkursýna úr öllum mjólkandi kúm sem mjólkurframleiðendur skulu alla jafnan taka tvisvar í hverjum ársfjórðungi, til þess að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi teljist fullnægjandi. Fullnægjandi afurðaskýrsluhald…Lesa meira

true

Yfir þúsund í bakvarðasveit og margir komnir til starfa

Í gær höfðu rúmlega eitt þúsund manns skráð sig á lista bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar. Á skrá eru einstaklingar úr 13 löggiltum heilbrigðisstéttum sem hafa boðið fram aðstoð sína. Stéttarfélögin hafa átt frumkvæði og lagt þessu máli lið, m.a. með því að kynna bakvarðasveitina meðal félagsmanna sinna. Nemar í læknisfræði og hjúkrunarfræði geta einnig skráð sig á…Lesa meira

true

Stuðningur vegna afleysingaþjónustu bænda

Að tillögu Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra hefur Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars sl. og gildir til og með 31. maí. Samkvæmt samkomulaginu geta bændur…Lesa meira

true

Samþykktu 26 milljarða aðgerðapakka

Alþingi samþykkti á mánudaginn breytingar á ýmsum lögum til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs Covid-19. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða. Fela þær meðal annars í sér frestun á greiðslu opinberra gjalda, brúarlán til fyrirtækja og tuttugu þúsund króna skattfrjálsa eingreiðslu til öryrkja. Samtals er um að ræða 4,6 milljarða aukningu…Lesa meira