Fréttir

true

Yfir þúsund í bakvarðasveit og margir komnir til starfa

Í gær höfðu rúmlega eitt þúsund manns skráð sig á lista bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar. Á skrá eru einstaklingar úr 13 löggiltum heilbrigðisstéttum sem hafa boðið fram aðstoð sína. Stéttarfélögin hafa átt frumkvæði og lagt þessu máli lið, m.a. með því að kynna bakvarðasveitina meðal félagsmanna sinna. Nemar í læknisfræði og hjúkrunarfræði geta einnig skráð sig á…Lesa meira

true

Stuðningur vegna afleysingaþjónustu bænda

Að tillögu Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra hefur Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars sl. og gildir til og með 31. maí. Samkvæmt samkomulaginu geta bændur…Lesa meira

true

Samþykktu 26 milljarða aðgerðapakka

Alþingi samþykkti á mánudaginn breytingar á ýmsum lögum til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs Covid-19. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða. Fela þær meðal annars í sér frestun á greiðslu opinberra gjalda, brúarlán til fyrirtækja og tuttugu þúsund króna skattfrjálsa eingreiðslu til öryrkja. Samtals er um að ræða 4,6 milljarða aukningu…Lesa meira

true

Boðið út að nýju

Bygging þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi hefur verið boðin út að nýju. Auglýst hefur verið eftir tilboðum í verkið á útboðsvef Ríkiskaupa en lesa má auglýsingu þar að lútandi í Skessuhorni vikunnar. Verkið var áður boðið út síðastliðið sumar en lægsta boð sem barst þá var frá Ístaki og hljóðaði upp á 622 milljónir, sem var 35%…Lesa meira

true

Frumvarpi um eignarráð og nýtingu fasteigna

Frumvarpi forsætisráðherra um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna var dreift á Alþingi í dag. Nái frumvarpið fram að ganga mun skapast yfirsýn yfir eignarhald á landi og stjórnvöld öðlast stýritæki til að stuðla að því að landnýting sé í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að…Lesa meira

true

Lagt til að samkomubann vari til 4. maí

Í gær lagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir það til við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að samkomubannið sem nú er í gildi, og átti að taka enda 13. apríl, verði framlengt í óbreyttri mynd til 4. maí næstkomandi eða fyrsta mánudag í maí.  Fréttavefur Ríkisútvarpsins greindi frá. Heilbrigðisráðherra mun nú í framhaldinu auglýsa tilskipun um það en fastlega…Lesa meira

true

Eitt nýtt smitt í landshlutanum

Eitt nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, samkvæmt tölum sem birtar voru af Lögreglunni á Vesturlandi nú rétt í þessu. Hefur nú 31 í landshlutanum greinst með veiruna, en voru 30 í gær. Nýja smitið greindist út frá heilsugæslustöðinni í Borgarnesi, en þaðan hafa nú 20 smit greinst. Sjö hafa greinst á…Lesa meira

true

Hvað er rafeldsneyti?

Í fjáraukafrumvarpi sem samþykkt var á Alþingi síðastliðinn mánudag var ákveðið að leggja til fjármuni til að ýmissa fjárfestingar- og þróunarverkefna um nýtingu orku og þróun á eldsneyti til samgangna. Þar er meðal annars horft til að gera hagkvæmni- og fýsileikakönnun á einu af þeim verkefnum sem Þróunarfélag Grundartanga hefur unnið að undanfarin misseri í…Lesa meira

true

Óvenjulegt tekjustreymi Hvalfjarðarsveitar á síðasta ári

Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðarsveitar á síðasta ári var jákvæð um 906,6 milljónir króna. Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2019 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 24. mars síðastliðinn. Rekstrarekjur A og B hluta námu 1.055,9 milljónum króna á síðasta ári, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.047,9 milljónum. Rekstrargjöld voru 856,6 milljónir. Veltufé frá rekstri var 89,93% og…Lesa meira

true

Skipverjar á Bárði settu Íslandsmet í veiðum í mars

Hinn nýi og glæsilegi netabátur, Bárður SH frá Ólafsvík, hefur heldur betur mokfiskað það sem af er vertíðinni. Aflinn frá áramótum er nú kominn í 1.886 tonn. Þar af var aflinn 1.091 tonn í 30 róðrum í nýliðnum marsmánuði sem er að öllum líkindum Íslandsmet hjá netabáti í einum mánuði. Að sögn Pétur Péturssonar útgerðarmanns…Lesa meira