
Litlu mátti muna í morgun að smábáturinn Abraham AK-73 sykki, þar sem hann lá bundinn við eina flotbryggjuna í Akraneshöfn. Maður sem kom að bátnum hóf þegar að ausa úr honum og gerði sömuleiðis viðvart. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar mætti á staðinn og dældi úr bátnum. Líklegt er að loki í vélarhúsi hafi gefið sig.…Lesa meira








