Fréttir

true

Slá í samkomubanni á létta strengi í Teams

Starfsmenn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) eru 53 talsins og starfa þeir á þrettán starfsstöðvum vítt og breitt um landið. Frá stofnun RML hafa starfsmenn notað fjarfundarbúnað mikið og unnið saman í gegnum Teams samskiptaforritið í verkefnum og geta þar tengst viðskiptavinum á fundum. Þessi reynsla kemur að góðum notum nú þegar bein samskipti fólks eru beinlínis…Lesa meira

true

Eurovisjón aflýst

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem átti að fara fram í maí í Rotterdam í Hollandi, hefur verið aflýst vegna COVID-19 faraldursins. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá að í tilkynningu frá EBU komi fram að vegna óvissuástandsins vegna útbreiðslu veirunnar og takmarkana ýmissa ríkisstjórna álfunnar á ferðafrelsi, neyðist aðstandendur keppninnar til þess að aflýsa henni. Þeir segja ákvörðunina…Lesa meira

true

Leggur til að sveitarfélög gefi afslátt af fasteignaskatti

Pétur Davíðsson, sem sæti á í hreppsnefnd Skorradalshrepps, hefur ritað Sigurði Inga Jóhannssyni sveitarstjórnarráðherra og Aldísi Hafsteinsdóttur formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga bréf. Þar leggur hann til, í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu og bágrar stöðu fyrirtækja, að sveitarfélög skoði að lækka fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði. „Ég tel augljóst að það verður að gefa eftir hluta af fasteignaskatti…Lesa meira

true

Vill skrá knattspyrnusögu Akraness

Björn Þór Björnsson sagnfræðingur hefur hug á því að rita sögu knattspyrnunnar á Akranesi, í tilefni af aldarafmæli knattspyrnunnar þar í bæ árið 2022. Miðar hann við stofnun Kára, fyrsta knattspyrnufélags bæjarins, sem stofnað var 26. maí 1922 af ungum drengjum á aldrinum 11-14 ára. Allar götur síðan hefur knattspyrnan skipað stóran sess í lífi…Lesa meira

true

Gegningamenn voru einangraðir í kirkju staðarins

Á Facebook Hvanneyrarbúsins voru í gær rifjaðar upp aðstæður sem sköpuðuðst á Hvanneyri þegar spænska veikin herjaði á landsmenn fyrir ríflega einni öld. Minnt er á að nú eru uppi fordæmalausir tímar fyrir allflesta núlifandi Íslendinga. Þá segir: „Það er samt ekki svo að skæðir faraldrar hafi ekki gengið áður yfir og núna er oft…Lesa meira

true

Brekkubæjarskóli ber nú titilinn „eTwinning skóli“

Í gær var tilkynnt hvaða skólar í Evrópu hljóta viðurkenninguna „eTwinning skóli“ til næstu tveggja ára. Níu skólar hér á landi munu bera titilinn og er Brekkubæjarskóli á Akranesi þeirra á meðal. Hinir skólarnir átta eru Grunnskóli Bolungarvíkur, Hamraskóli, Heilsuleikskólinn Skógarás, Leikskólinn Furugrund, Leikskólinn Holt, Norðlingaskóli, Selásskóli og Setbergsskóli. eTwinning skólar eru nú ellefu talsins…Lesa meira

true

Jarðskjálfti á Reykjanesi

Nú laust eftir klukkan 10:30 varð jarðskjálfti, 4,2 á Richter, um þrjá kílómetra norðvestur af Gunnuhver á Reykjanesi. Skjálftinn fannst víða á Reykjanesi og nokkrir smærri eftirskjálftar hafa mælst. „Niðurstöður jarðskorpumælinga við Þorbjörn sýna að þensla sem veldur landrisi er hafin að nýju. Landrisið er nú hægara en það sem mældist í lok janúar en…Lesa meira

true

Mörg spennandi tækifæri fyrir Háskólann á Bifröst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík var ráðin í starf rektors Háskólans á Bifröst í ársbyrjun. Hún tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi en hefur verið iðin þetta misserið við að hitta starfsfólk og stjórnendur skólans og hagsmunaaðila og setja sig inn í starf rektorsins. Skessuhorn hitti Margréti að máli síðastliðinn fimmtudag og ræddi við hana um hana…Lesa meira

true

Hafi samband símleiðis telji fólk sig smitað

Almannavarnanefnd Vesturlands bendir á að þeir sem telja sig smitaða af COVID-19 kórónaveirunni skulu hafa samband símleiðis við heilsugæslu á svæðinu á dagvinnutíma, eða í gegnum netspjallið á www.heilsuvera.is. Einnig má hafa samband í síma 1700 þar sem heilbrigðisstarfsfólk situr fyrir svörum og gefur ráðleggingar. Mikilvægt er að fara að þessum ráðum, en fara ekki…Lesa meira

true

Enginn samgangur milli lögreglustöðva

Lögreglan á Vesturlandi hefur gripið til ýmissa ráðstafana vegna COVID-19 faraldursins. Enginn samgangur er á milli lögreglustöðvanna sex í umdæminu. Þar að auki hefur stöðinni á Akranesi verið skipt upp í tvö hólf og ekki er samngangur þar á milli. Yfirlögregluþjónn og aðstoðaryfirlögregluþjónn munu skiptast á að vinna heima, viku í senn, næstu vikurnar. Ásmundur…Lesa meira