
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Felast þau meðal annars í ákvæðum um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, sem sveitarstjórn segir ólýðræðislega. „Tillagan um lágmarksfjölda íbúa er sem slík í algjörri andstæðu við þær lýðræðislegu áherslur sem koma fram að öðru leyti í tillögunni,“ segir í bókun sveitarstjórnar frá 25. febrúar.…Lesa meira








