
Stella er Íslendingum að góðu kunn. Flest kunnum við fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni. Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einmitt sýningunni. Sýningin er afrakstur samstarfs Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans á Hólmavík. Leikarar og aðstandendur sýningarinnar…Lesa meira








