Fréttir

true

Kallar eftir endurskoðun laga um stéttarfélög og vinnudeilur

Guðjón S Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar lagði í síðustu viku fram fyrirspurn á Alþingi til félags- og barnamálaráðherra um endurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Spurði hann hvort fyrirhuguð væri heildarendurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80 sem eru frá árinu 1938. „Ef ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun einstakra þátta laganna,…Lesa meira

true

Fiskbúðin Skagafiskur var opnuð í morgun

Fiskbúðin Skagafiskur var formlega opnuð við Kirkjubraut 40 á Akranesi klukkan ellefu í morgun. Margir lögðu leið sína í búðina við opnun og strax var nóg að gera. Í borðinu er mikið úrval af bæði ferskum fiski og fiskréttum auk þess sem hægt var að kaupa tilbúið meðlæti. Sjómaðurinn Kristófer Bjarnason var fyrsti viðskiptavinurinn í…Lesa meira

true

Kynntu úrræði sem bæta eiga stöðu leigjenda

Breyta á húsaleigulögum með það fyrir augum að styrkja verulega stöðu leigjenda hér á landi og gera veru á leigumarkaði að fýsilegum kosti fyrir fólk til langs tíma. Breytingarnar voru kynntar á opnum fundi í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í gær. Á fundinum kom fram að leigumarkaðurinn á Íslandi stækkaði um 70% á árunum eftir hrun…Lesa meira

true

Fosnakongen leitaði vars í Rifi

Dráttar- og þjónustubáturinn Fosnakongen var við höfn í Rifi í síðustu viku en hann kom til Rifs vegna veðurs á leiðinni suður frá Vestfjörðum. Fosnakongen er tvíbytna sem smíðaður var 2015. Hann var leigður til ýmissa verka í tengslum við laxeldið á Vestfjörðum en báturinn er ekki einungis góður dráttarbátur heldur er hann með tvo…Lesa meira

true

Sigurður hættir hjá KFÍA

Sigurður Þór Sigursteinsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA, en hann hefur gegnt starfinu frá því í ágúst 2018. „Mér bauðst tækifæri til að fara aftur inn á þann starfsvettvang sem ég er menntaður í, í heilbrigðisgeirann,“ segir Sigurður í samtali við Skessuhorn, en hann er iðjuþjálfi að mennt. „Ég mun…Lesa meira

true

Drög að Menntastefnu 2030 í samráðsgátt

„Markmið stjórnvalda með mótun menntastefnu til ársins 2030 er að veita framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju og árangur í umhverfi þar sem allir skipta máli og allir geta lært. Drög að þingsályktunartillögu um menntastefnu eru nú til umsagnar í Samráðsgátt og er skilafrestur umsagna 13. mars næstkomandi,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.…Lesa meira

true

PíNK er nýtt félag Pírata í Norðvesturkjördæmi

Stofnfundur PíNK – Pírata í Norðvesturkjördæmi, var haldinn á Sauðárkróki á sunnudagskvöldið. „Fundurinn var vel sóttur og ljóst að áhugi á starfi og stefnu Pírata fer vaxandi í kjördæminu. Halldóra Mogensen þingmaður Pírata stýrði fundi og eftir formlega stofnun var ráðist í kosningar í fyrstu stjórn félagsins en hana skipa: Sunna Einarsdóttir formaður, Pétur Óli…Lesa meira

true

Vilja vita hvort stjórn Landsvirkjunar styðji aðgerðir forstjórans

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í síðustu viku ályktun sem snýr að orkufrekum iðnaði hér á landi og framgöngu Landsvirkjunar í samskiptum við stóriðjufyrirtæki. Þar segir í upphafi: „Í ágústmánuði síðasta árs sendu sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og bæjarstjórn Akraness sameiginlega frá sér áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkusækins iðnaðar, þar sem vakin…Lesa meira

true

Veðbankar spá góðu gengi Daða og Gagnamagnsins

Framlag Íslands í Eurovision söngvakeppninni trónir í augnablikinu í efsta sæti erlendra veðbanka. Eftir úrslitakvöldið á laugardaginn var ljóst að Daði og Gagnamagnið verður framlag Íslands, en lagið heitir Think about things. Þótt Íslands sé nú í efsta sæti veðbankanna er ljóst að margt getur enn breyst fram að keppninni í maí. Til dæmis þá…Lesa meira