Fréttir

true

Siggi Hösk bauð á stofutónleika

Sigurður Höskuldsson bauð á stofutónleika á heimili sínu í Ólafsvík um síðustu helgi. Þar bauðst gestum og gangandi að koma við og hlýða á ljúfa tóna, falleg lög og ljóð um fólk, umhverfi og tilfinningar. Auk Sigga Hösk, eins og hann er venjulega kallaður, sungu þau Aðalsteinn Kristófersson sem einnig spilaði á gítar og Olga…Lesa meira

true

Ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás og morðhótun í Grundarfirði, aðfararnótt laugardagsins 20. október 2018. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vesturlands 13. mars næstkomandi. DV greinir frá, en miðillinn hefur ákæru héraðssaksóknara undir höndum. Manninum er gefið að sök að hafa ýtt öðrum manni upp að grindverki, þrengt að hálsi hans þar til…Lesa meira

true

Björk hlaut viðurkenningu Hagþenkis

Viðurkenning Hagþenkis, Félags höfunda fræðirita og kennslugagna, var veitt í gær í Þjóðarbókhlöðunni. Hana hlaut Björk Ingimundardóttir skjalavörður frá Hæli í Flókadal í Borgarfirði fyrir ritið Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II, sem Þjóðskjalasafn gaf út. Í orðum viðurkenningaráðsins sagði um ritið: „Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á…Lesa meira

true

Skeljungur kaupir Bauluna og opnar Orkustöð

Fram kemur í tilkynningu frá Skeljungi í dag að fyrirtækið hafi keypt rekstur Baulunnar í Stafholtstungum. Í kaupunum fylgja allar fasteignir og lóðarréttindi ásamt verslunar- og veitingarekstrinum sjálfum. Fyrirhugað er að bensínstöð Orkunnar verði opnuð á svæðinu á komandi mánuðum og þá hyggst Skeljungur efla rekstur veitingasölunnar. Samhliða því að Orkan verður söluaðili munu merki…Lesa meira

true

Engar heimsóknir leyfðar og dregið úr ferðalögum

Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði fer að dæmi annarra fiskvinnslufyrirtækja hér á landi og hefur nú beint þeim tilmælum til starfsmanna að engar heimsóknir eru leyfðar í starfsstöð fyrirtækisins um óákveðinn tíma vegna óvissuástands sem ríkir vegna Covid-19 veirunnar. Að auki er starfsfólk hvatt til að draga úr ferðalögum eins og frekast er unnt og…Lesa meira

true

Ritsmiðjur framundan í Safnahúsi

Miðvikudagana 11. og 25. mars næstkomandi stendur bókasafn Safnahússins í Borgarnesi fyrir tvenns konar ritsmiðjum í umsjón Sunnu Dísar Másdóttur. Hún er sjálfstætt starfandi bókmenntagagnrýnandi, ritlistarleiðbeinandi og skáld. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 og aðgangur er ókeypis. Ritsmiðjan miðvikudaginn 11. mars verður klukkan 19:20-22:30 og nefnist „Að skrifa lífið.“  Þar er um að ræða fræðandi smiðja…Lesa meira

true

Fresta verkfalli vegna veirunnar

Boðuðum verkfallsaðgerðum félagsmanna Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur verið frestað á meðan hættustig almannavarna vegna kóronaveiru (COVID-19) er í gildi. „LSS treystir á að samningsaðilar nýti sér ekki þessa frestun til að tefja samninga og haldi áfram viðræðum með sama krafti eins og að verkföllum hafi ekki verið frestað. Frestun verkfalla gildir þar til…Lesa meira

true

Fyrirtækjakynningu frestað

Fyrirtækjakynningu á vegum Rótarýklúbbs Borgarness, sem fara átti fram í Hjálmakletti laugardaginn 14. mars næstkomandi, hefur verið frestað fram á haust. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi Rótarýklúbbs Borgarness á miðvikudagskvöld. „Ákveðið var að grípa til þessara varúðarráðstafana vegna þeirra aðstæðna sem eru í samfélaginu vegna kórónaveirunnar,“ segir í tilkynningu frá Rótarýklúbbi Borgarness. Til…Lesa meira

true

Hinsegin málefni voru tekin fyrir á Júlíönu

Margir lögðu leið sína í Hólminn um liðna helgi þegar Júlíana hátíð sögu og bóka var haldin þar, en allar viðburðir hátíðarinnar voru vel sóttir, bæði af heimamönnum og öðrum bókaunnendum. Hátíðin var sett á fimmtudagskvöldinu á Vatnasafninu með því að Sólveig Júlíana Ásgeirsdóttir las úr bók sinni Bláský. Nemendur frá Tónlistarskólanum í Stykkishólmi spiluðu…Lesa meira

true

Heimamenn sterkari á lokasprettinum

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða eftir fjörugan leik gegn Vestra. Leikið var á Ísafirði á þriðjudagskvöld. Um var að ræða frestaðan leik, sem upphaflega átti að spila 20. desember en var slegið á frest vegna veðurs. Jafnt var á með liðunum framan af fyrsta leikhluta og heimamenn voru þremur stigum yfir þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður,…Lesa meira