Fréttir

true

Lagt til að flýtt verði um tíu ár jarðstrengjavæðingu raforku

Forsvarsfólk Ríkisstjórnarinnar kynnti í morgun tillögur átakshóps um úrbætur í innviðum. Þær hugmyndir fela meðal annars í sér að jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku verði flýtt til 2025 í stað 2035, framkvæmdir í svæðisflutningskerfi raforku sem ekki eru á tíu ára kerfisáætlun verði flýtt. Þrífösun verður innleidd samhliða jarðstrengjavæðingunni. Áætlað er að jarðstrengjavæðingin muni fækka truflunum í dreifikerfinu…Lesa meira

true

Vestlendingar í öðru og þriðja sæti í uppistandi

Íslandsmótið í uppistandi fór fram í Háskólabíóí í gærkvöldi. Af tíu keppendum komu þrír þeirra af Vesturlandi; Ingi Björn Róbertsson, eða Iddi Biddi, Anna Lilja Björnsdóttir og Lára Magnúsdóttir. Íslandsmeistari í uppistandi varð Greipur Hjaltason en næstu tvö sæti verma Vestlendingarnir Anna Lilja, sem hreppti annað sætið, og Iddi Biddi, sem hafnaði í þriðja sæti.…Lesa meira

true

Stofnaði eigið flutningafyrirtæki

Eiður Smári Björnsson er ungur maður búsettur á Akranesi. Hann stofnaði nýverið flutningafyrirtækið EB Flutninga og hóf sjálfstæðan atvinnurekstur. „Ég geri út frá Reykjavík og flest verkefnin eru þar. En ég sinni líka Akranesi og Borgarnesi og svæðunum þar í kring. Ég get alltaf tekið sendingar með mér heim á bílnum í lok dags ef…Lesa meira

true

Hársbreidd frá sigri

Skallagrímsmenn voru grátlega nálægt því að leggja Selfyssinga á útivelli í gær, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Um háspennuleik var að ræða þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Selfyssingar höfðu sigur með tveimur stigum, 82-80. Skallagrímsmenn voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum á meðan heimamenn fundu sig ekki. Borgnesingar…Lesa meira

true

Verðlaun veitt á aðalfundi Kúabændafélagsins Baulu

Aðalfundur hjá Kúabændafélaginu Baulu fór fram miðvikudaginn 19. febrúar og var þar nokkrum kúabúum veittar viðurkenningar fyrir ræktunarstörf. Kúabændafélagið Baula nær frá sunnanverðu Snæfellsnesi, um Mýrar og Borgarfjörð norðan Skaðsheiðar og var félagið stofnað árið 2011, en hlutverk félagsins er að vinna að sameiginlegum hagsmunum kúabænda á þessu svæði. Á fundinum fór Arnar Árnason formaður…Lesa meira

true

Bréfaskrif hvunndagshetju til umfjöllunar í Snorrastofu

Þriðjudagskvöldið 3. mars næstkomandi kl. 20 flytur Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur fyrirlesturinn, „Bréf til bróður míns,“ í Bókhlöðu Snorrastofu og fjallar þar um ævi og bréf Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871). Eftir Sigríði liggja um 250 bréf, sem hún ritaði bróður sínum Páli Pálssyni. Hún bjó í Reykholti 1833-1840, gift sr. Þorsteini Helgasyni, sem drukknaði í Reykjadalsá…Lesa meira

true

Ráðist verður í gerð nýs aðalskipulags fyrir Húsafell

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp þann úrskurð 21. febrúar síðastliðinn að fella úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Borgarbyggð frá 28. maí 2019 um að veita byggingarleyfi fyrir legsteinaskála að Bæjargili í landi Húsafells. Mál það á sér töluvert langa sögu og málsatvik lesendum Skessuhorns kunn. Vegna þessarar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar nú hyggst Borgarbyggð bregðast við…Lesa meira

true

Hægt að panta miða á söngveislu Söngbræðra fram að seinni fréttum

Skessuhorn minnir á að þegar seinni fréttir hefjast í sjónvarpinu í kvöld rennur jafnframt út frestur til að panta miða á hina árlegu söng- sviða- og hrossakjetsveislu karlakórsins Söngbræðra. Skemmtun þessi hefur í árafjöld verið ein best sótta menningarhátíð í landshlutanum og sprengt utan af sér hvert félagsheimilið af fætur öðrum í aðsókn. Á hátíðinni…Lesa meira

true

Styrkir Orkusjóðs til kaldra svæða

Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2020 verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en þar segir:  „Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga.“ Samkvæmt auglýsingu kemur til greina meðal annars uppsetning varmadæla, uppsetning eða endurbætur…Lesa meira

true

Veittu styrki á kútmagakvöldi

Árlegt kútmagakvöld Lionsklúbbs Grundarfjarðar var haldið í samkomuhúsinu laugardaginn 22. febrúar síðastliðinn. Við það tilefni afhentu Lionsmenn peningastyrki til málefna í heimabyggð. Að þessu sinni hlutu styrki Ungmennafélag Grundarfjarðar, Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness, Klifurfell menningarhús og Golfklúbburinn Vestarr.Lesa meira