
Vetrarþjónusta á vegum var til umræðu á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar, 13. febrúar. Í fundargerð kemur fram að stjórnendur Dalabyggðar hafi fengið óformlega þær upplýsingar að hjá Vegagerðinni hafi verið til umræðu tillögur þess efnis að draga úr vetrarþjónustu á leiðinni frá Dalsmynni til Ísafjarðar. Fyrir Dalamenn snýr þetta að Bröttubrekku og Svínadal, en varðar…Lesa meira








